Þöggunin um aukaverkanirnar og andlátin hér á landi eftir sprauturnar er ekkert annað en glæpsamleg!

Eftirfarandi færsla birtist á bloggi Kristínar Ingu Þormar.

Metfjöldi tilkynntra alvarlegra aukaverkana á stuttu tímabili var birtur í dag, eða 4 yfir helgina!

Heildarfjöldi tilkynninga á því tímabili frá því að bústin byrjuðu er orðinn 420, þar af 35 alvarlegar.

Smá upprifjun á hvað alvarleg aukaverkun er:

Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum.

Búið er að segja núna að 35 manneskjur séu látnar eftir þær, en það var falið í viðtali við forstjóra Lyfjastofnunar í síðustu viku.

Áður var búið að segja frá 32 andlátum, en ég minnist ekki að hafa séð sérstakar tilkynningar um þessi 3 nýjustu í fjölmiðlunum frekar en öll hin.

Það er greinilega meiri frétt að gamalmenni á níræðisaldri sem eru væntanlega tví- eða þrísprautuð deyi vegna veirunnar, að sögn.

Þessi þöggun um þessar þegar tilkynntu 5.960 aukaverkanir lýsir ekkert öðru en einbeittum brotavilja þeirra sem búin eru að narra 90% þjóðarinnar í þessar sprautur – í fullkomnu samstarfi við fjölmiðlana, og nú er byrjað á litlu krökkunum!

Hvað þarf til þess að fólk vakni, þurfa börn að veikjast og/eða deyja hér á landi eftir sprauturnar, rétt eins og er að gerast í öðrum löndum?

Búmm – Bóluefnin orðin gagnslaus gegn smiti!

Ég tek undir hvert orð sem Jóhannes skrifar í þessari vönduðu grein.

0110d

Umræður í spjallgrúppu á FB – íslenskur raunveruleiki

Ég á skjáskot af þessum umræðum og skrifa þær orðrétt hér fyrir neðan:

Hef aldrei verið jafn oft veik og eftir þessar bólusetningar. Leyfi mér að vera ósammála.

Ji hvað ég er sammála, ég er pínulítið farin að kenna bólusetningu um hversu veik ég er búin að vera.

Það er bara stór undantekning ef ég verð veik, hef orðið oftar veik eftir að ég fékk bólusetningu en fyrir hana.

Ég er bólusett og heilsuhraust en er fárveik af þessu covid núna og ég verð aldrei veik.

Ímyndaðu þér þá hversu veik þú værir ef þú værir ekki bólusett…

Ég gat ekki að því gert þegar sá síðasta kommentið hér að ofan að finna til vorkunnar gagnvart viðkomandi manneskju.

Búið að innprenta hjá fólki að allt sé betra en að fá Covid, svo kannski er viðkomandi að reyna þarna að finna einhverja „réttlætingu“ á veikindunum.

Ítarefni

Stórkostleg grein sem styður fullkomlega við fyrirsögn þessa pistils:

Fyrir löngu varð ljóst að aðgerðirnar gegn faraldrinum væru í hróplegu ósamræmi við alvarleika og stærð hans og er ég sannfærður um að afleiðingar þeirra – að meðtöldum bóluefnunum – munu þegar upp er staðið eyðileggja mun fleiri mannslíf en þær björguðu.

Markvisst var þaggað niður á samfélagsmiðlum í röddum allra þeirra fjölmörgu sérfræðinga sem ekki samrýmdust yfirlýstum aðgerðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og hræðsluáróður meginstraumsmiðlanna allra hefur dunið á okkur linnulaust síðustu 20 mánuðina og sér ekki fyrir endann á þeim sirkus.

Höfundur greinarinnar hefur rétt eins margir aðrir hér á landi skrifað bréf til yfirvalda, jafnvel ábyrgðarbréf, og sent þau öllum alþingismönnum, forseta Íslands, flestum starfandi blaðamönnum og miklum fjölda lækna og vísindamanna.

Viðbrögðin? Lítil sem engin, bara glæpsamleg þögn og þöggun!

Hvað ætti það að segja ykkur kæra þjóð?

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila