
Rúnar Þór ræddi við Þórir Baldursson tónlistarmann í þættinum Slappaðu af um uppvaxtarár, fjölbreytt verkefni og áratugalangan feril í íslenskri og alþjóðlegri tónlist. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ræturnar liggja í Keflavík og á Dalvík
Þórir sagði að í æsku hafi tónlist var órjúfanlegur hluti daglegs lífs. Faðir hans spilaði á fjölmörg hljóðfæri og áhuginn á tónlist hafi kviknað snemma. Sumarstörf og dvöl á Dalvík mótuðu hann einnig; þar kynntist hann verkstæðisbrag, gömlum danslögum og tónlistarlífi sem lagði grunn að fyrstu skrefum hans sem hljóðfæraleikara.
Fyrstu hljómsveitir og mótandi ár
Ungur að árum tók Þórir þátt í skólahljómsveitum, unglingaböndum og síðar danssveitum sem styrktu leikni hans. Hann leysti oft af í sveitum sem spiluðu klassíska ameríska standarda og lærði án nótna með því að fylgja hljómum og formi. Þar varð til vinnulag sem síðar nýttist honum í stúdíóvinnu bæði heima og erlendis. Spútnik-tríóið og fleiri sveitir urðu vettvangur þróunar, nýrra tónlistarstefna og leiðina að löngum farsælum ferli.
Upptökur og samvinna við breiðan hóp listamanna
Þórir starfaði með fjölmörgum íslenskum tónlistarmönnum á uppvaxtarárum sínum og samdi meðal annars lög fyrir Dátana, þar á meðal „Leyndarmál“. Upptökur á þessum árum fóru fram með einfaldri en skapandi tækni sem mótaði hljóð plötutónlistar þess tíma. Íþættinum lýsti hann vel þeim áhrifum sem saxófónleikarar, söngvarar og hljóðfæraleikarar sem hann starfaði með höfðu á hann og hvernig samvinna innan sveitanna skapaði ákveðin tón sem hann hefur haldið sig við æ síðan.
Alþjóðlegur ferill og stúdíóvinna í Evrópu og Bandaríkjunum
Síðar fluttist Þórir til München þar sem hann starfaði með hópi hljóðfæraleikara sem nefndur var The Munich Machine, sambærilegur bandaríska stúdíóhópnum The Wrecking Crew. Þar tók hann þátt í upptökum fyrir fjölda listamanna og þróaði alþjóðlegt net samstarfsaðila. Hann vann meðal annars með Elton John, Donnu Summer og Grace Jones og lýsir margra ára ferli þar sem verkefni og tónlistarstefnur breyttust hratt. Að sögn Þóris var þessi tími afar skapandi og krefjandi og styrkti stöðu hans sem fagmanns í tónlistinni.
Nútíminn og ný verkefni
Þótt ferill Þóris spanni meira en sex áratugi heldur hann áfram að semja, taka upp og koma fram. Hann vinnur nú að nýjum útgáfum eldri laga og starfar með íslenskum og erlendum tónlistarmönnum. Einnig undirbýr hann tónleika í Gamla bíó þar sem bandaríski píanóleikarinn Don Randi og fleiri listamenn koma fram ásamt hópi íslenskra hljóðfæraleikara. Þórir segir núverandi verkefni gefandi og sérhvert verkefni sem hann taki að sér færi honum nýja sýn á fagið.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
