Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú meint kynferðisbrot í Hafnarfirði á laugardag, en tilkynning um málið barst lögreglu á áttunda tímanum í gærmorgun.
Málið var strax tekið mjög alvarlega og voru viðbrögð lögreglu eftir því, en í upphafi voru málsatvik um margt óljós. Þrír voru handteknir í þágu rannsóknarinnar, en þeim var síðan sleppt að loknum yfirheyrslum.
Rannsókn málsins er áfram í fullum gangi en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.