
Leiðtogar ríkisstjórnar Þýskalands hafa náð samkomulagi um umfangsmiklar skattabreytingar og efnahagsaðgerðir sem eiga að létta skattbyrði lág- og millitekjufólks og örva hagkerfið. Friedrich Merz kanslari segir breytingarnar nauðsynlegar til að efla traust á ríkisstjórninni, sem hefur átt undir högg að sækja í skoðanakönnunum. Þetta segir í frétt Politico.
Samkomulagið kemur á sama tíma og stjórnarflokkarnir standa frammi fyrir auknum þrýstingi um að efna loforð um umbætur á meðal annars skattakerfi og lífeyrismálum, á meðan stuðningur við AfD heldur áfram að aukast.
Fjölskyldur fá skattalækkun
Samkvæmt samkomulaginu munu lág- og millitekjuhópar njóta skattalækkana. Fjögurra manna fjölskylda með 60 þúsund evrur í skattskyldar árstekjur er talin spara um 600 evrur á ári samkvæmt útreikningum ríkisstjórnarinnar.
Á móti verða skattar hækkaðir á tekjuhæstu einstaklingana. Gert er ráð fyrir að 45 prósenta skattþrep taki við af 250 þúsund evrum í árstekjur og að tekjur yfir 280 þúsund evrum verði skattlagðar með 47 prósenta skatthlutfalli.
Aðgerðir til að efla samkeppnishæfni
Ríkisstjórnin kynnti einnig fleiri efnahagsaðgerðir sem eiga að styrkja útflutningsdrifið þýskt atvinnulíf. Þar á meðal er ný viðskiptastefna sem á að verja þýsk fyrirtæki gegn ósanngjarnri samkeppni, meðal annars frá Kína.
Lars Klingbeil fjármálaráðherra sagði Þýskaland styðja opna alþjóðaverslun en að stjórnvöld myndu jafnframt leggja aukna áherslu á evrópska framleiðslu á sviðum sem teljast mikilvæg, svo sem innviðum og varnarmálum.
Vilja auka vinnuframlag
Samkomulagið felur einnig í sér aðgerðir sem eiga að styrkja samkeppnishæfni innanlands. Meðal annars á að hvetja til aukinnar vinnu á sunnudögum og gera erfiðara fyrir starfsfólk að taka veikindaleyfi.
Merz hefur áður gagnrýnt háan fjölda veikindadaga meðal þýskra launþega og sagt það hafa neikvæð áhrif á hagvöxt landsins.
Vonast til að stöðva fylgistap
Fylgi ríkisstjórnarinnar hefur farið minnkandi undanfarna mánuði. Í nýlegri könnun sögðust aðeins um 12 prósent Þjóðverja vera ánægð með störf hennar.
Á sama tíma hefur AfD mælst stærsti flokkur landsins í nokkrum skoðanakönnunum og nýtur sérstaklega mikils stuðnings í tveimur austurhluta sambandsríkjum þar sem kosið verður í september.
Merz segir markmið ríkisstjórnarinnar vera að sýna kjósendum að stjórnin geti hrint umbótum í framkvæmd og brugðist við þeim efnahagslegu áskorunum sem Þýskaland stendur frammi fyrir. Samkomulagið þarf þó enn að hljóta samþykki ríkisstjórnarinnar og þýska sambandsþingsins áður en breytingarnar taka gildi.
