
Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota, hefur ákveðið að hætta við framboð sitt til endurkjörs í kjölfar umfangsmikilla svikamála sem hafa komið upp í ríkinu. Ákvörðunin hefur vakið hörð viðbrögð repúblikana sem telja að hann beri beina pólitíska ábyrgð á málinu og krefjast þess að hann segi af sér embætti. Fjallað er um málið á Fox news.
Svikamál talið eitt hið stærsta í Bandaríkjunum
Undanfarin ár hefur verið rannsakað umfangsmikið svikamál í Minnesota þar sem yfir 90 manns hafa verið ákærðir. Málið snýr meðal annars að meintum fjárdrætti í gegnum fölsuð máltíða- og húsnæðisúrræði auk misnotkunar á Medicaid-kerfinu. Samkvæmt bandarískum saksóknara í Minnesota gæti heildarumfang svikanna numið meira en einum milljarði dollara og allt að níu milljörðum.
Walz hafði í september tilkynnt að hann hygðist sækjast eftir þriðja kjörtímabili sem ríkisstjóri en hefur sætt vaxandi pólitískum þrýstingi vegna málsins bæði frá repúblikönum og innan eigin flokks.
Repúblikanar krefjast afsagnar
Repúblikanar í Minnesota segja að ákvörðun Walz um að hætta við endurkjör leysi hann ekki undan ábyrgð. Þeir benda á að á hans valdatíð hafi verið gengið á um 18 milljarða dollara fjárlagaafgang og skattar hækkaðir um 10 milljarða dollara á sama tíma og eitt stærsta svikamál í sögu ríkisins hafi átt sér stað. Að þeirra mati sé brotthvarf úr kosningabaráttu ekki nægjanlegt skref og þeir krefjast þess að Walz segi af sér embætti. Jafnframt hefur skapast óvissa um hver taki við keflinu af hálfu demókrata en repúblikanar segja að skipti litlu hver verði næsti frambjóðandi nema tekið verði á þeim skaða sem þeir telja að hafi þegar orðið.
