Þrátt fyrir að kristni hér á landi sé hægt og rólega að mjakast út á jaðarinn þá er kristnin enn sterk og hefur mikil áhrif á samfélagsþróunina. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Hjalta Hugasonar prófessors í guðfræði og trúarbragðafræði í þætti Markúsar Þórhallssonar í dag.
Hjalti segir að með breytingum á samfélaginu hafi menn velt fyrir sér hvernig trúmálum verði háttað í framtíðinni
“ þegar fjölmenningin kemur svona sterk inn hér þá koma hér inn fleiri trúarbrögð með mismunandi áherslur, til dæmis hvað frídaga varðar, þeir eru jafnvel aðrir, við þurrfum að hafa það í huga og taka tillit til þess og þá er einnig hægt að velta fyrir sér hvernig önnur trúarbrögð hafa áhrif inn í okkar trúarlíf„,segir Hjalti.
Hlusta má á viðtalið hér að neðan