
Donald Trump segir að það gæti komið til þess að Bandaríkin þyrftu að velja á milli þess að halda úti Atlantshafsbandalaginu NATO og þess að ná yfirráðum yfir Grænlandi. Ummælin féllu í tengslum við ítrekun á kröfum hans um bandarísk yfirráð yfir Grænlandi. Fjallað er um málið á Euronews.
NATO hvorki fugl né fiskur án Bandaríkjanna
Trump sagði að NATO hefði lítið vægi án þátttöku Bandaríkjanna og sagði að Rússland hefði ekki áhyggjur af öðrum aðildarríkjum bandalagsins. Hann sagði Evrópuríki þurfa að bæta stöðu sína innan NATO og axla aukna ábyrgð.
Segir eigið siðferði einu raunverulega takmörkun hernaðarvalds
Í viðtalinu fjallaði Trump einnig um heimildir sínar til að beita bandarískum herafla á alþjóðavettvangi. Hann sagði að eigin siðferðiskennd væri eina raunverulega takmörkunin á ákvörðunum hans um hernaðaraðgerðir. Hann sagði jafnframt ekki ekki alþjóðalög til að setja slíkum aðgerðum skorður þó hann bæri að fylgja þeim. Trump lagði jafnfram áherslu á að hann væri ekki að leita eftir því að valda fólki skaða á nokkurn hátt.
Stjórnvöld hafna hugmyndum Trumps
Stjórnvöld í Danmörku og á Grænlandi hafa hafnað hugmyndum Trumps um að kaupa eða taka yfir eyjuna. Danski forsætisráðherrann sagði í vikunni að hernaðarleg tilraun til að ná yfirráðum yfir Grænlandi myndi marka endalok NATO.
Sameiginleg yfirlýsing Evrópuríkja
Í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga Frakklands Þýskalands Ítalíu Póllands Spánar Bretlands og Danmerkur var ítreka’ að Grænland tilheyri íbúum sínum og að aðeins stjórnvöld Danmerkur og Grænlands geti tekið ákvarðanir um framtíð eyjunnar.
