Trump skoðar matseðilinn í Davos

Júlíus Valsson skrifar:

Hinn kunni spekingur, Mark Carney forsætisráðherra Kanada, er verðugur bandamaður og góð fyrirmynd þeirra Íslendinga sem vilja troða Íslandi inn í E*B. Hann hefur meðal annars kennt þeim öflugt líkingamál og spakmæli sem þeir nýta sér óspart.

Dæmi:
„Það er betra að sitja við borðið en frammi á gangi.“
eða:
„Ef þú situr ekki við borðið þá ertu á matseðlinum.“ Hmm…?

Nýjustu spakmæli hans voru kynnt í gær á fundi öfluga og sterka fólksins í Davos þar sem hann sagði:

„Til að verjast þeim sterku (les: USA og Trump) þurfa meðalstór ríki að hópa sig saman og mynda bandalag.“

Þetta kann að hljóma sem djúp speki en við sem erum alin upp á tjarnarbakkanum í Reykjavík þekkjum vel hvað gerist þegar sá sterki setur hinn veikburðari á matseðilinn. Hinir veiku hópa sig saman til að mynda eina „sterka heild“ og vona að þeir sleppi.

En við breytum ekki náttúrunni, sagði Leonardo da Vinci.
Myndin skýrir sig sjálf.

Höfundur er læknir og sjálfskipaður fullveldissinni

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila