Beint streymi: Hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran

Donald Trump Bandaríkjaforseti staðfesti í morgun að Bandaríkin og Ísrael hafi hafið umfangsmiklar hernaðaraðgerðir gegn Íran. Tilkynningin kemur í kjölfar loftárása Ísraels á írönsk skotmörk í nótt og markar skýra stigmögnun átaka á svæðinu.

Í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social segir forsetinn að ítrekaðar tilraunir hafi verið gerðar til að ná samkomulagi við írönsk stjórnvöld um kjarnorkuáætlun landsins. Hann hafi 19. febrúar veitt Írönum fimmtán daga frest til að ganga að samningaborði en sá frestur sé nú liðinn án niðurstöðu.

Segir markmiðið að brjóta niður eldflaugagetu

Donald Trump segir að aðgerðirnar beinist að eldflauga- og varnargetu Írans. Bandaríkin hyggist eyðileggja flugskeyti landsins og gera flugskeytaiðnaðinn óstarfhæfan. Að hans sögn sé markmiðið að koma í veg fyrir að íranska klerkastjórnin geti ógnað Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra.

Hann heldur því fram að Íran hafi unnið að enduruppbyggingu kjarnorkuáætlunar sinnar og samhliða þróað langdrægar eldflaugar sem geti ógnað ríkjum Evrópu, bandarískum hermönnum erlendis og jafnvel meginlandi Bandaríkjanna.

Ágreiningur um umfang viðræðna

Írönsk stjórnvöld hafa áður sagt að viðræður við Bandaríkin eigi eingöngu að snúast um kjarnorkuáætlun landsins. Bandarísk stjórnvöld hafa hins vegar lagt áherslu á að samkomulag verði einnig að taka til eldflaugaáætlunar Írans og stuðnings stjórnvalda þar við vopnaða hópa í Miðausturlöndum.

Undanfarna daga hefur bandaríski herinn aukið viðveru sína á svæðinu. Meðal annars er flugmóðurskipið USS Gerald R. Ford komið að ströndum Ísraels, en skipið er það stærsta í flotanum og burðarás í loft- og sjóhernaði Bandaríkjanna.

Staðfesting forsetans á beinum hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna bendir til þess að átökin séu komin á nýtt stig með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir öryggi á svæðinu og samskipti stórvelda.

Hér að neðan má horfa á beina útsendingu Agenda Free TV þar sem blaðamaðurinn Steve Lookner fer yfir öll nýjustu tíðindin af átakasvæðunum.

Hér fyrir neðan má svo sjá beina útsendingu Sky News þar sem fjallað er um málið.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila