Trump tekur forstjóra Twitter inn á teppið til að útskýra hvarf fylgjenda í stórum stíl
Arnþrúður Karlsdóttir
S.l. þriðjudag kallaði Bandaríkjaforseti Donald Trump forstjóra Twitters Jack Dorsey inn á teppið í Hvíta húsinu. Krafðist Trump svara við af hverju Twitter ritskoðar íhaldsmenn og af hverjur margir af fylgjendum hans á Twitter hefðu horfið. Margir notendur Twitter hafa að undanförnu tekið eftir því að fylgjendur þeirra hverfa í stórum stíl. Notandi Twitter fær kannski 10 nýja fylgjendur en samtímis hverfa 6 eldri fylgjendur á dularfullan hátt. Trump er einn þeirra sem hafa lent í þessu og á fundinum með Dorsey eyddi forsetinn „töluverðum tíma“ í að ræða vandamálið að sögn Reuters. Fyrir fundinn tísti Trump að Twitter meðhöndlaði Repúblikana á slæman hátt: „Þeir taka stöðugt burt fólk af listanum hjá mér. Ég fæ miklar kvartanir frá mörgum“ skrifar Trump og segir að hann hefði miklu fleiri fylgjendur ef „Twitter væri ekki að leika pólitískt spil“. Twitter afsakar sig með því, að þeir hafi nýlega hafið baráttu fyrir því að taka burtu „grunsamlega notendur“. Bæði Trump og Twitter lýstu yfir ánægju með fundinn í Hvíta húsinu, Twitter segir í yfirlýsingu að „Dorsey átti árangursríkar viðræður við Bandaríkjaforseta“ og Trump tísti að „fundurinn hefði verið frábær“ og hann„hlakkaði til áframhaldandi opinskárra viðræðna!“
“The best thing ever to happen to Twitter is Donald Trump.” @MariaBartiromo So true, but they don’t treat me well as a Republican. Very discriminatory, hard for people to sign on. Constantly taking people off list. Big complaints from many people. Different names-over 100 M…..