Trump þakklátur fyrir að 6. janúar-myndböndin voru gerð aðgengileg almenningi

Trump forseti brást við myndböndunum frá 6. janúar sem Tucker Carlson birti á mánudagskvöldið. Tucker Carlson, þáttastjórnandi Fox News, birti eftirlitsmyndbönd 6. janúar sem Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar þingsins, afhenti honum. Carlson sýndi upptökur af lögreglumanninum Brian Sicknick sem gekk um sali þinghússins í fullu fjöri, eftir að fullyrt var að hann hefði verið myrtur. Tucker Carlson birti einnig myndband sem sýnir Ray Epps bera ljúgvitni í eiðsvörnum vitnisburði fyrir 6. janúar nefndinni.

Annað myndband, sem birt var, sýndi Jacob Chansley, sem kallaður er „QAnon Shaman“ ganga friðsamlega í gegnum þingsali í fylgd lögreglumanna. Nefndarmenn 6. janúar nefndarinnar Liz Cheney, Adam Kizinger, Nancy Pelosi og fjölmiðlar lugu um hvað gerðist í raun og veru þann 6. janúar. Cheney leyndi vísvitandi myndefninu frá 6. janúar sem sýnir sannleikann um 6. janúar.

Hin ókjörna 6. janúar nefnd verður stimpluð sem glæpsamleg frásagnarveita

Trump hrósaði Tucker Carlson hjá Fox News og forseta Bandaríkjaþings Kevin McCarthy fyrir að gera myndböndin aðgengileg fyrir almenning samanber færslur hans á Truth Social (sjá að neðan):

„Hamingjuóskir til Tucker Carlson fyrir eina stærstu afhjúpun sem blaðamaður hefur komið með í sögu Bandaríkjanna. Nýja eftirlitsmyndbandið af atburðunum 6. janúar varpar allt öðru ljósi á það sem raunverulega gerðist. Hin ókjörna nefnd er risastórt svindl og hefur nú ótvírætt verið stimpluð sem glæpsamleg frásagnarveita þessa mikilvægasta dags. Pelosi og McConnell mistókst í öryggismálunum. Sagan um lögregluna er sorgleg og erfitt að horfa á hana. „Trump“ og flestir aðrir eru algjörlega saklausir, LÁTIÐ ÞÁ LAUSA, NÚNA!“

Staðreyndir sem ekki verða afmáðar

Trump hrósaði einnig Kevin McCarthy fyrir að afhenda Tucker Carlson myndefnið frá 6. janúar:

„Kevin McCarthy, forseti þingsins, sýndi mikið hugrekki, þegar hann afhenti Tucker Carlson myndböndin svo að landið okkar og raunar allur heimurinn geti séð, hvað raunverulega gerðist þann 6. janúar. Ný og algjörlega andstæð mynd hefur nú verið sýnd sem ekki verður hægt að afmá. Hin ókjörna nefnd hefur farið með ósannindi og ætti að lögsækja fyrir gjörðir sínar. Nancy og Mitch voru hörmuleg í öryggismálunum. Þakka þér Kevin og Tucker. LOKSINS FRJÁLS!!!“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila