
Tveimur erlendum ríkisborgurum, karli og konu, hefur verið vísað brott frá Íslandi á grundvelli ákvörðunar Útlendingastofnunar samkvæmt lögum um útlendinga. Jafnframt hefur þeim verið bannað að koma aftur til landsins næstu fimm ár.
Hafa komið ítrekað við sögu lögreglu
Viðkomandi eru á fertugs- og fimmtugsaldri og höfðu dvalið á Íslandi í um tvö ár. Á þeim tíma komu þau ítrekað við sögu lögreglu vegna afskipta af refsiverðum brotum meðal annars þjófnaðar.
Sakfellt í héraðsdómi
Fólkið var sakfellt í héraðsdómi síðastliðið haust og í byrjun þessa árs fyrir fjölda brota gegn almennum hegningarlögum. Brottvísunin var framkvæmd í kjölfar niðurstöðu Útlendingastofnunar.
