
Tveir piltar voru handteknir í Grafarvogi í gærkvöld eftir að lögreglu barst tilkynning um vopnaða menn í hverfinu. Við húsleit fundust tvö skotvopn sem lögregla lagði hald á og beinist rannsókn meðal annars að því hvort til stóð að nota vopnin til að ógna öðrum.
Handteknir í heimahúsi
Lögreglan brást skjótt við tilkynningunni og fann mennina í heimahúsi í hverfinu. Þar reyndust einnig vera tvö skotvopn sem tekin voru til varðveislu. Báðir aðilar eru undir tvítugu og var annar þeirra færður á Stuðla en hinn vistaður í fangageymslu lögreglunnar.
Sérsveit kölluð til
Nokkur viðbúnaður var vegna málsins í ljósi alvarleika tilkynningarinnar. Lögreglan naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra á vettvangi í gærkvöld. Rannsókn málsins er í gangi.
