Úlfar: Erlendum ríkisborgurum sem brjóta lög á að vísa úr landi strax

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Úlfar Lúðvíksson fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum í síðdegisútvarpinu í dag um stöðu útlendingamála og landamæra. Einnig hvaða heimilidir séu í íslensk löggjöf til þess að bregst við brotum erlendra ríkisborgara. Hann taldi að núverandi lög væru óskýr og veikari en víða annars staðar og að Ísland þyrfti að beita afdráttarlausum heimildum til að vísa erlendum brotamönnum úr landi þegar þeir brytu lög. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Útlendingar sem brjóta lög eigi að víkja úr landi

Úlfar sagði að íslensk framkvæmd væri of lin og að útlendingar sem brytu af sér, sérstaklega í tengslum við fíkniefnamál og aðra alvarlega brotastarfsemi, ættu að sæta brottvísun með skýrum og einföldum hætti. Hann taldi óeðlilegt að einstaklingar sem hefðu enga tengingu við landið fengju áfram dvöl þrátt fyrir brot og að það grafi undan trausti almennings á kerfinu. Að hans mati hefur Ísland ekki nýtt þær heimildir sem fyrir hendi eru.

Vísar til fyrirmynda í Danmörku

Úlfar sagði að Danmörk hefði markað leið sem Ísland gæti tekið sér til fyrirmyndar. Þar væri löggjöfin skýr, reglurnar afdráttarlausar og framkvæmdin samræmd. Hann sagði að Danmörk beitti brottvísunum reglulega þegar útlendingar brytu af sér og að jákvæð áhrif þess sæjust í minna álagi á kerfið og skýrari skilaboðum til þeirra sem sæktu um dvöl. Hann taldi brýnt að Ísland færi sömu leið ef takast ætti á við vaxandi alþjóðlega brotastarfsemi.

Brotalöm í núverandi löggjöf sem skipulagðir brotahópar nýta sér

Hann sagði ný útlendingalög árið 2016 hafa þrengt möguleika lögreglu til að kanna bakgrunn þeirra sem kæmu til landsins innan Shengen-svæðisins. Þetta hefði leitt til þess að einstaklingar með óljósa stöðu eða skráningu víða í Evrópu gætu komið til Íslands án þess að yfirvöld fengju fullnægjandi upplýsingar. Úlfar taldi að þessi þróun hefði auðveldað aðkomu skipulagðra brotahópa og skapað aðstæður þar sem erfitt væri að bregðast við nema með skýrri löggjafarbreytingu.

Þörf á afdráttarlausri framkvæmd

Úlfar sagði að ef Ísland ætlaði sér að ná tökum á þróuninni þyrfti framkvæmd brottvísana að vera hraðari, gagnsærri og studd einföldum lagaramma. Hann taldi að núverandi kerfi væri svo flókið og stigbundið að það stæði í vegi fyrir því að brottvísun væri raunhæfur kostur í flestum málum. Að hans mati yrði að setja skýra stefnu um að brot gegn íslenskum lögum leiddu til brottvísunar nema sérstakar ástæður mæltu gegn því.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila