
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur verið í sambandi við um sextíu íslenska ríkisborgara sem staddir eru á svæðum í Mið-Austurlöndum þar sem átök hafa haft áhrif. Flug liggur víða niðri og eru margir strandaglópar vegna lokana á loftrými.
Flest mál tengjast Dubai
Stærstur hluti erinda varðar Íslendinga í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá eru tvö mál til meðferðar vegna íslenskra ríkisborgara í Íran og einnig mál sem snúa að hópi Íslendinga í Barein. Meirihluti þessa hóps hefur fasta búsetu erlendis.
Lokun loftrýmis í heimshlutanum hefur haft í för með sér að umræddir einstaklingar komast ekki ferða sinna með flugi, líkt og tugþúsundir annarra alþjóðlegra ferðalanga.
Takmörkuð aðstoð vegna fjarveru sendiráða
Borgaraþjónustan hefur veitt upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni. Möguleikar Íslands til beinnar aðstoðar takmarkast þó af því að landið rekur ekki sendiráð í viðkomandi heimshluta.
Þeim sem hyggjast yfirgefa svæðin hefur verið ráðlagt að fylgjast náið með þróun mála og tryggja sér sæti í farþegaflugi um leið og lofthelgi opnast á ný.
Fylgst grannt með þróun mála
Tilmæli borgaraþjónustunnar eru í samræmi við ráðleggingar norrænna stjórnvalda. Íslenskir ríkisborgarar eru hvattir til að fylgjast með staðbundnum fjölmiðlum, fara eftir fyrirmælum yfirvalda og hafa samband við þau flugfélög sem þeir eiga bókað flug með.
Utanríkisráðuneytið fylgist náið með stöðunni og á í samstarfi við Norðurlöndin og sendiráð þeirra á svæðinu sem meta þróun mála á grundvelli staðbundinnar þekkingar.
Auk þessa hefur fjöldi Íslendinga orðið fyrir ferðaröskunum annars staðar í heiminum þar sem flugvellirnir í Doha og Dubai eru mikilvægir tengipunktar í millilandaflugi.
Utanríkisráðuneytið gefur ekki út eigin ferðaviðvaranir heldur vísar til ferðaráða Norðurlandanna sem hafa um helgina hert ráðleggingar sínar og vara alfarið við ferðum til margra ríkja í Mið-Austurlöndum eða ráða frá öllum ónauðsynlegum ferðum þangað.
