
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Frosta Sigurjónsson rekstrarhagfræðing og fyrrverandi alþingismann í síðdegisútvarpinu um umsagnir sem bárust vegna þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu, um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið eins og það er orðað. Í umræðunni var farið yfir efni umsagna frá fyrrverandi ráðherrum, fræðimönnum og hagsmunasamtökum og hvernig þær fjalla um áhrif aðildar á stjórnskipan og fullveldi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Takmarkaður stuðningur í umsögnum
Frosti rakti að aðeins fáar umsagnir hefðu stutt tillöguna án fyrirvara. Flestar umsagnir hafi annað hvort gert athugasemdir við forsendur hennar eða lagt til breytingar á framkvæmd og orðalagi. Nokkrar umsagnir hafi verið settar fram með fræðilegum hætti og fjallað um ferlið sjálft, fremur en að taka afstöðu með eða á móti.
Áhersla á stöðu EES-samningsins
Í umsögnum kom fram að núverandi samstarf Íslands innan EES, veiti aðgang að innri markaði án þess að lagasetningarvald flytjist í sama mæli úr landi. Frosti bent á að Alþingi fjalli um innleiðingu reglna og það fyrirkomulag tryggi ákveðna aðkomu að lagasetningu sem breytist við fulla aðild.
Lagaleg áhrif aðildar
Frosti vísaði til umsagnar Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, þar sem fjallað væri um hvernig reglur Evrópusambandsins hefðu bein réttaráhrif í aðildarríkjum. Með aðild færðist lagasetning í auknum mæli til stofnana sambandsins og dómstólar þess hefðu úrslitaáhrif á túlkun reglna. Hann sagði jafnframt bent á að þetta gæti haft áhrif á hlutverk Alþingis til lengri tíma.
Samanburður við fyrri ágreiningsmál
Í umræðunni var vísað til Icesave-deilunnar þar sem niðurstaða dómstóla utan Evrópusambandsins varð Íslandi í hag. Frosti sagði í umsögnum bent á að niðurstaða slíkra mála gæti orðið önnur innan kerfis sambandsins þar sem túlkun laga taki mið af markmiðum þess.
Breiður hópur umsagnaraðila
Meðal þeirra sem sendu inn umsagnir voru fyrrverandi ráðherrar og þingmenn ásamt fleirum sem hefðu látið málið til sín taka á opinberum vettvangi. Í umræðunni kom fram að umsagnir endurspegli ólíkar áherslur en það sem væri sameiginlegt hjá umsagnaraðilum, væri að kalla eftir skýrari forsendum og vandaðri málsmeðferð áður en tekin yrði ákvörðun um næstu skref. Heyra má nánar um umsagnir þeirra í þættinum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
