
Það er algerlega undir íslenskum ráðamanna komið hvort hér nái erlend öfl völdum og nái að innleiða að fullu Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Þetta var meðal þess sem fram kom í Menntaspjallinu í dag en þar voru gestir Valgerðar Jónsdóttir þeir Leifur Árnason flugstjóri og Logi Kjartansson lögmaður.
Logi segir að forvígismenn Heimsmarkmiðanna tali á þann hátt eins og þeir geti stjórnað því sem þeir vilji hér á landi en raunin er sú að þeir ráði hér engu því þjóðin sé varin gagnvart slíku með stjórnarskránni.
Þrýstingur á ráðamenn gæti leitt til stjórnarskrárbreytinga
Það væri því ekki nema með meðvirkni ráðamanna sem létu undan mögulegum þrýstingi á að gera breytingar á stjórnarskránni sem það yrði fyrst mögulegt að erlend öfl gætu ráðið því hér sem þau vilja ráða segir Logi.
Pack for the future er hræðsluáróður
Í þættinum var rætt um ákveðna áætlun sem Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fram undir heitinu Pack for the future sem sé í raun hluti af innleiðingarferli sem SÞ vilji aðþjóðir heims taki þátt í og setji jafnvel sem bein lög inn í samfélag sitt. Tekur þessi áætlun mið af Heimsmarkmiðum SÞ og er í raun einungis hræðsluáróður þar sem því er haldið fram að fólk verði að samþykkja fjölþjóðahyggjuna og geri fólk það ekki sé ekki von á góðu í framtíðinni.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
