Vörubílsstjórar loka vegum landsins – átök milli stríðandi fylkinga
Mikil mótmæli standa nú yfir í Brasilíu. Margir eru óánægðir með kosningaúrslitin á sunnudag og hafa vörubílstjórar lokað hundruðum vega um landið. Ofbeldisfullar óeirðir hafa blossað upp í Brasilíu eftir forsetakosningarnar á sunnudag, þar sem Lula da Silva, frambjóðandi vinstrimanna, bar sigurorð af Jair Bolsonaro, frambjóðanda hægrimanna. Hluti þjóðarinnar telja að svindlað hafi verið í kosningunum.
Samkvæmt New York Times er Brasilía „eina landið“ sem notar fullkomlega stafrænt kosningakerfi án öryggisafrita á pappír. Sumir halda því fram á samfélagsmiðlum, að um alþjóðlegt valdarán sé að ræða. Stuðningsmenn Lula halda því hins vegar fram að það séu í staðinn hægrimenn sem reyni nú að framkvæma valdarán. Einnig er verið að dreifa myndböndum, sem eru sögð sýna stuðningsmenn Bolsonaro myrta á götum landsins. 45 ára Antoniel Almeida, verslunareigandi frá Barra Mansa norður af Rio de Janeiro, segir við New York Times:
„Við verðum hér þar til herinn skerst í leikinn eða þar til kosningastjórnin breytir því, sem er að gerast núna. Það verður að rannsaka málið.“
Búist við að Bolsonaro haldi ræðu í sjónvarpi til þjóðarinnar í dag
Samkvæmt Reuters hafa vörubílstjórar sem styðja Jair Bolsonaro lokað vegum um allt land og segir Reuters, að það muni valda enn meiri efnahagslegum glundroða, þar sem Brasilía er einn af fremstu matvælaframleiðendum heims. Vörubílstjórar gegna þýðingarmiklu hlutverki í Brasilíu og eru einn mikilvægasti kjósendahópur landsins „þekktir fyrir að raska efnahag Brasilíu með því að loka þjóðvegum“ skrifar Reuters. Umferðarlögreglan í Brasilíu segir að um sé að ræða 321 mótmæli, sem hafa lokað vegum að hluta eða öllu leyti í 26 ríkjum landsins. Að sögn New York Times eru m.a. stór bíldekk otað til að loka vegum.
Enn sem komið er hefur Bolsonaro ekki tjáð sig um úrslit kosninganna en búist er við að hann haldi ræðu á þriðjudag. Óljóst er hvað hann mun segja eða hvort hann muni játa sig sigraðan.