„Við berjumst í stríði gegn Rússlandi“ segir Annalena Baerbock utanríkisráðherra Þýskalands. Það brakar greinilega í „einingunni“ þegar kemur að Úkraínu.
Á þingi Evrópuráðsins í Strassborg í gær hvatti Annalena Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands, fyrrverandi leiðtogi bandalags 90/Græningja, til samstöðu á Vesturlöndum um átökin í Úkraínu. Eða réttara sagt í stríðinu gegn Rússlandi eins og hún orðaði það sjálf:
„Ef við förum að benda hvert á annað eða höldum áfram að gera það vegna þess að það er þægilegra fyrir okkur sjálf, þá vinna Rússland og Pútín. Þess vegna reyni ég að gera hið gagnstæða.“
Þetta sagði hún í svari við spurningu frá hneyksluðum breskum stjórnmálamanni, sem telur að Þýskaland sé að „framlengja stríðið“ með því að senda ekki nægjanlegan herbúnað til Úkraínu. Annalena Baerbock hélt áfram:
„Já, við verðum að gera meira til að verja Úkraínu. Já, við þurfum líka að gera meira varðandi skriðdreka. En það mikilvægasta og afgerandi er, að við gerum þetta saman og að við kennum ekki hvort öðru um í Evrópu.“
„Vegna þess að við erum að berjast í stríði gegn Rússlandi en ekki hvert gegn öðru.“
Sjá yfirlýsinguna í heild sinni HÉR. Myndbandið er tekið á fundi Evrópuráðsins og utanríkisráðherran hefur mál sitt á 12 mínútu þriðja klukkutíma myndbandsins.