Útgerðarrisar ráða því sem þeir vilja ráða og hafa sína menn í hverjum flokki

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræðingur

Útgerðarrisarnir á Íslandi ráða því sem þeir vilja ráða í íslensku samfélagi og fara sínu fram með góðu eða illu. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur doktors í íslenskum bókmenntum, rithöfundar og þjóðfræðings í síðdegisútvarpinu í dag en hún var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar, þar sem rætt var um nýútkomna bók Ólínu sem nefnist Spegill fyrir skuggabaldur og fjallar um frændhygli, spillingu og pólitískar ráðningar.

Ólína segir að um djúpt og þéttriðið net útgerðarrisana sé að ræða sem teygi sig út í alla kima samfélagsins og segir Ólína þá nota völd sín af mikilli óbilgirni. Ólína segir að eitt fyrirtæki ,Samherji tróni á toppnum hvað varðar völd og áhrif í samfélaginu

þetta eru mennirnir sem hringt er í þegar verið er að semja frumvörp sem varða sjávarútveg og þeir mæta í skjóli myrkurs heim til ráðherrans til að líta yfir frumvörpin og eru eins og gráir kettir um ganga Sjávarútvegsráðuneytisins„.

Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila