Í byrjun september flæddi óánægjuflóð yfir Evrópu og tugþúsundir manna gengu út á götur til að mótmæla gífurlegum rafmagnsreikningum og verstu verðbólgu í áratugi. Sum lönd reyndu að hamla reiði meðborgaranna með hjálparpökkum en öll lönd höfðu ekki fjármagn til slíks.
Refsiaðgerðirnar áttu að senda Rússland til baka til steinaldar en ESB fer á undan
Vestrænar refsiaðgerðir gegn Rússlandi hafa af hálfu Bandaríkjanna og ESB verið álitnar öflugt tæki utanríkisstefnunnar til að senda Rússland til baka til „steinaldar.“ En refsiaðgerðirnar gegn Rússlandi hafa verið risastórt feilskot og í staðinn valdið verstu lífskjarakreppu Evrópubúa í heila kynslóð.
Tugþúsundir manna hafa mótmælt í Frakklandi, Belgíu, Tékklandi, Ungverjalandi og Þýskalandi – margir mótmælendur hafa fengið nóg af refsiaðgerðum gegn Rússlandi, sem hafa þegar náð að rústa mörgum heimilum og fyrirtækjum – og það ætti því ekki að koma á óvart, að stuðningur við þátttöku NATO í Úkraínu fer minnkandi. Meðvitund og ágreiningur fer vaxandi meðal Evrópubúa, þegar leiðtogar landa þeirra setja metnað NATO í Úkraínu fram yfir hag eigin landsmanna. Forgangsröðunin hefur verið í formi refsiaðgerða gegn Moskvu, sem kveikt hefur verðbólgubál í orkumálum og senda vopn til Úkraínu, sem hefur gert Rússland að andstæðingi allra slíkra ríkja.
Við erum bara að sjá lognið á undan storminum
Margir Evrópubúar krefjast þess nú, að Nató semji við Rússland og bindi enda á stríðið svo lægja megi óstöðugleikann í efnahagsmálum. WSJ hefur bent á, að þótt meirihluti Þjóðverja styðji stefnu ríkisstjórnar Olafs Scholz kanslara varðandi Úkraínustríðið, þá fer fylgi Valkosts Þýskalands „Alternative for Germany“ AfD vaxandi. AfD hvetur til þess að refsiaðgerðum gegn Rússlandi verði aflétt. Fylgi þeirra hefur aukist úr 10% í 15% á 9 mánuðum. Manfred Güllner, hjá skoðanakannanafyrirtækinu Forsa segir:
„Þetta er bara lognið á undan storminum — óánægjan er mikil og fólki finnst ekki, að ríkisstjórnin hafi trúverðuga stefnu til að ná tökum á kreppunni.“
Það sem verra er, refsiaðgerðirnar hafa verulega veikt hagkerfið og samdráttur verður ekki umflúinn í vetur. Viðleitni Seðlabanka ESB til að ná tökum á verðbólgunni með hraðri vaxtahækkun, hefur einnig sína áhættu.
Hér að neðan eru myndbönd af nýjustu mótmælum um alla Evrópu, þar sem hundruð þúsundir manna hrópa slagorð gegn Nató og krefjast bóta vegna kjaraskerðinga í kjölfar óðaverðbólgunnar.