Útilokar ekki að vantrauststillaga verði lögð á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra

Enn er ekki útlokað að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra fái á sig vantrauststillögu þó Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki með slíkt í bígerð. Það fari þó eftir því hver niðurstaða Umboðsmanns Alþingis verði í hvalveiðibannsmálinu. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Vilhjálms Árnasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur í dag.

Vilhjálmur segir að verði niðurstaða Umboðsmanns Alþingis sú að Svandís hafi brotið stjórnsýslulög í málinu muni minnihlutinn á þinginu að öllum líkindum leggja fram vantrauststillögu á ráðherrann að því gefnu að hún verði ekki búin að segja af sér sjálf.

Hann segir nýja reglugerð sem ráðherra setti í dag ekki setja neitt nýtt fram umfram það sem Hvalur hf hafi þegar verið að fylgja nema að þarna sé verið að skjalfesta verklagið betur. Þá sé í reglugerðinni sem Vilhjálmur segir að sé í anda þeirra laga, sem gildi um veiðarnar, gert ráð fyrir að ýmislegt sem lýtur að eftirliti með veiðunum sé meira skráð en áður meðal annars með myndbandsupptökum eins og gert var á síðustu vertíð.

Eftirlitið í anda stórabróður

„þarna sé stórabróðurseftirlit komið inn í þetta líka en það er svo kannski önnur umræða hvort það tengist hvalveiðum almennt hvað við viljum ganga langt í slíku eftirliti“

Þá segir Vilhjálmur að það sé skerpt á ákveðinni tilkynningaskyldu í reglugerðinni, til að mynda ef eitthvað misferst við veiðarnar, ef skotið dýr týnist og svo framvegis.

„þannig að öll svona frávik sem koma upp sýnist mér að tilkynna þurfi samkvæmt reglugerðinni“ segir Vilhjálmur.

Hvað varðar stöðu ráðherra ef í ljós kemur að brotið hafi verið gagnvart stjórnsýslulögunum með hvalveiðibanninu sem nú hefur verið aflétt segir Vilhjálmur að ef það komi á daginn sé morgunljóst að ráðherran sé í afar erfiðri stöðu og ætti að íhuga stöðu sína og að minnsta kosti ekki að koma nærri slíkum málaflokki aftur.

Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila