
Varaforseti Bandaríkjanna, JD Vance, gagnrýndi Evrópusambandið harðlega í heimsókn til Búdapest og lýsti yfir stuðningi við Viktor Orbán forsætisráðherra, nokkrum dögum fyrir þingkosningar í landinu. Fjallað er um málið á Euronews.
Gagnrýni á afskipti og reglur ESB
Í sameiginlegum blaðamannafundi sagði Vance að stofnanir ESB hefðu reynt að hafa áhrif á kosningabaráttuna í Ungverjalandi og beitt aðgerðum sem hefðu veikt efnahag landsins og aukið kostnað fyrir almenning. Hann gagnrýndi jafnframt reglur sambandsins, um stafrænt efni og hélt því fram að þær fælu í sér óeðlileg afskipti af upplýsingaflæði til kjósenda.
Segir leyniþjónustuna í Úkraínu einnig reynt að hafa áhrif
Vance sagði að úkraínska leyniþjónustan hafi reynt að hafa áhrif á kosningarnar. Þá hafa ungversk stjórnvöld einnig gert athugasemdir sem lúta að afskiptum úkraínsku leyniþjónustunnar en leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Péter Magyar, brást við með því að vara við hvers kyns erlendum afskiptum og lagði áherslu á að kosningarnar væru mál Ungverja sjálfra.
Versnandi samskipti við Brussel
Samskipti Ungverjalands og Evrópusambandsins hafa verið stirð um árabil. ESB hefur haldið eftir fjármunum vegna meintrar spillingu og stöðu réttarríkisins, á meðan ríkisstjórn Orbáns hefur meðal annars stöðvað fjárhagsaðstoð til Úkraínu.
Spennandi kosningabarátta
Kosningarnar sem fara fram næstkomandi sunnudag eru sagðar vera talsverð prófraun Viktors Orbán, en nýlegar kannanir benda til þess að Tisza-flokkurinn, undir forystu Péters Magyar, sé með forskot á Fidesz, flokk Orbáns. Vance sagði að Bandaríkin myndu engu að síður vinna með þeirri ríkisstjórn sem myndi taka við völdum eftir kosningarnar.
