Vaxtastuðningur við heimilin aðeins dropi í hafið

Hagmunasamtök heimilanna hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þau gagnrýna harðlega vaxtastuðning ríkisstjórnarinnar við heimilin sem þau segja varla upp í nös á ketti samanborið við þann gríðarlega vaxtakostnað sem hefur verið lagður á skuldug heimili landsins.

Auk þess sé stuðningurinn greiddur beint til lánveitenda sem greiðsla inn á höfuðstól fasteignalána. Í tilkynningunni segir að samtökin hafi strax í umsögn sinni um málið gasgnrýnt að upphæðin greiddist sjálfkrafa inn á höfuðstól húsnæðislána sem lækkar greiðslubyrði þeirra mjög lítið. Sem dæmi myndu mánaðarlegar greiðslur af dæmigerðu 50 milljón króna óverðtryggðu láni aðeins lækka um á bilinu 1.300-2.300 krónur með þessu.

„Þetta er dropi í hafið og mun ekki bjarga miklu fyrir heimili sem glíma við greiðslubyrði sem hefur hækkað um hundrað sinnum hærri upphæðir á mánuði. Stjórnvöld ættu miklu frekar að einbeita sér að því að lækka vaxtagjöld heimilanna en að færa almannafé aftur til skattgreiðenda með svona sjónhverfingum og kalla það “stuðning” segir í tilkynningunni.

Hagsmunasamtök heimilanna segja að skynsamlegra væri að skipta stuðningnum niður á afborganir. Heimili sem séu í vanda vegna vaxtahækkana glími flest við greiðsluvanda en ekki laka eiginfjárstöðu í fasteign sinni. Með því að velja það að ráðstafa þessum stuðningi inn á afborganir láns í stað þess að greiða hann inn á höfuðstól, sé að mati samtakanna hægt að létta greiðslubyrði næstu mánaða.

„Einstaklingar geta mest fengið 150.000 krónur og hjón 250.000. Sé þessum upphæðum skipt niður á afborganir frá 1. september og út árið myndu afborganir einstaklinga lækka um 37.500 á mánuði og hjóna um 62.50 krónur á mánuði. Sennilega munar flest heimili um það.“segja samtökin.

Samtökin segja að með glórulausum vaxtahækkunum sínum hafi Seðlabankinn flutt fé heimilanna yfir til lánveitenda á meðan ríkisstjórnir undanfarinna mánaða hafi staðið aðgerðarlausar hjá.

„Þar sem heimilin standa augljóslega ekki undir þessum glæpsamlegu vaxtahækkunum, þykist ríkisstjórnin svo koma til móts við heimilin með sérstökum vaxtastuðningi sem fer beint til lánveitenda í stað þess að koma heimilum í greiðsluvanda að gagni. Þetta er í raun styrkur frá ríkinu til lánastofnana upp á 7 milljarða af fé okkar allra. Væri ekki bara nær að leysa þetta heimatilbúna og óþarfa vandamál og sleppa þessum ríkisstyrk til lánveitenda, með því að lækka einfaldlega vextina?“ segir í tilkynningunni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila