Vegvísir að vistvænum samgöngum kynntur í samráðsgátt

Áform um vegvísi að vistvænum samgöngum til ársins 2030 hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Vegvísirinn er í takti við forgangsmál ríkisstjórnarinnar sem séu loftslagsmál í forgang. Draga á úr losun gróðurhúsalofttegunda um 55% eða meira til ársins 2030 miðað við losun árið 2005. Þá skulu efldar aðgerðir í kolefnisbindingu og landnotkun sem miða að því að ná markmiði um kolefnishlutleysi árið 2040. Gert er ráð fyrir að árið 2040 skuli fullum orkuskiptum hafa verið náð og þannig skuli Ísland verða óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. 

Vegvísirinn að vistvænum samgöngum á Íslandi til ársins 2030 mun innihalda skilgreindar tímasettar aðgerðir sem miða að því að markmiðum um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda verði náð miðað við árið 2005. 

Á árunum 2005-2020 var um þriðjungur af losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands vegna samgangna. Framreikningar Umhverfisstofnunar á losun gróðurhúsalofttegunda sýna að frekari aðgerða er þörf til að uppfylla markmið um samdrátt í losun. Vegvísi um vistvænar samgöngur til 2030 er því ætlað að vinna að frekari aðgerðum í samdrætti í losun frá samgöngum til að vinna að því markmiði að Ísland standi við skuldbindingar sínar og uppfylli sjálfstæð markmið.

Viðfangsefni vegvísisins verður orkuskipti í samgöngum, samgöngutæki, eldsneyti og uppbygging innviða sem og leiðir til að draga úr kolefnisspori vegna uppbyggingar og reksturs samgöngumannvirkja. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni verða höfð að leiðarljósi.

Smellt hér til þess að skoða málið nánar í samráðsgáttinni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila