Verbúðin með átta verðlaun á Eddunni

Í gærkvöld var Eddan 2023 haldin við hátíðlega athöfn í Háskólabíó. Hátt í 1000 manns mættu á
hátíðina og var heldur betur kátt á hjalla. Eins og áður hefur komið fram hafa aldrei borist
fleiri innsendingar til Eddunnar frá framleiðendum en fyrir árið í fyrra.

Verbúðin er ótvíræðursigurvegari kvöldsins með heil 8 verðlaun, þar á meðal fyrir leikið efni, leikara í aðalhlutverki og leikkonu í aðalhlutverki, enda nutu þættirnir mikilla vinsælda meðal þjóðarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þá sem hlutu verðlaunin 2023.

Aðalflokkar: Verk

Aðalflokkar: Verk
BARNA- OG UNGLINGAEFNI ÁRSINS: Randalín og Mundi: Dagar í desember.
Framleiðslufyrirtæki: Glassriver. Framleiðandi: Arnbjörg Hafliðadóttir.

FRÉTTA- EÐA VIÐTALSÞÁTTUR ÁRSINS: Kveikur. Framleiðslufyrirtæki: RÚV.
Framleiðandi: Þóra Arnórsdóttir og Ritstjórn Kveiks

HEIMILDAMYND ÁRSINS: Velkominn Árni. Framleiðslufyrirtæki: Pelikula. Framleiðandi:
Allan Sigurðsson, Sólmundur Hólm Sólmundarson og Viktoría Hermannsdóttir.

ÍÞRÓTTAEFNI ÁRSINS: Jón Arnór. Framleiðslufyrirtæki: Stoð 2 og Stoð 2 Sport.
Framleiðandi: Garðar Örn Arnarson.

KVIKMYND ÁRSINS: Berdreymi. Framleiðslufyrirtæki: Join Motion Pictures. Framleiðandi:Anton Máni Svansson.

LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS: Verbúðin. Framleiðslufyrirtæki: Vesturport.
Framleiðandi: Nína Dögg Filippusdóttir, Nana Alfreðsdóttir, Gísli Örn Garðarsson og Björn Hlynur Haraldsson

MANNLÍFSÞÁTTUR ÁRSINS: Leitin að upprunanum. Framleiðslufyrirtæki: Stoð 2.
Framleiðandi: Sigrún Ósk Kristjánsdóttir.

MENNINGARÞÁTTUR ÁRSINS: Evrópsku kvikmyndaverðlaunin. Framleiðslufyrirtæki:
Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Reykjavíkurborg, B28 Produktion, Harpa og RÚV.

SKEMMTIÞÁTTUR ÁRSINS: Áramótaskaup 2022. Framleiðslufyrirtæki: S800 fyrir RÚV.
Framleiðandi: Sigurjón Kjartansson, Eiður Birgisson og Hjörtur Grétarsson.

STUTTMYND ÁRSINS: Hreiður. Framleiðslufyrirtæki: Join Motion Pictures. Framleiðandi: Anton Máni Svansson.

Flokkar fagverðlauna:

BRELLUR ÁRSINS: Guðjón Jónsson (VFX Supervisor) Monopix, ShortCut, MPC, Union
VFX og Filmgate. Fagverðlaun verk: Against the Ice.

BÚNINGAR ÁRSINS: Margrét Einarsdóttir og Rebekka Jónsdóttir. Fagverðlaun verk:
Verbúðin

GERVI ÁRSINS: Kristín Júlla Kristjánsdóttir. Fagverðlaun verk: Verbúðin

HANDRIT ÁRSINS: Mikael Torfason, Björn Hlynur Haraldsson og Gísli Örn Garðarsson. Fagverðlaun verk: Verbúðin

HLJÓÐ ÁRSINS: Gunnar Árnason. Fagverðlaun verk: Skjálfti

KLIPPING ÁRSINS: Kristján Loðmfjörð. Fagverðlaun verk: Verbúðin.

KVIKMYNDATAKA ÁRSINS: Maria von Hausswolff. Fagverðlaun verk: Volaða Land.

LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI: Gísli Örn Garðarsson. Fagverðlaun verk: Verbúðin.

LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI: Björn Thors. Fagverðlaun verk: Svar við bréfi Helgu

LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI: Nína Dögg Filippusdóttir. Fagverðlaun verk:Verbúðin.

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI: Anita Briem. Fagverðlaun verk: Svar við bréfi
Helgu.

LEIKMYND ÁRSINS: Atli Geir Grétarsson og Ólafur Jónasson: Fagverðlaun verk:
Verbúðin.

LEIKSTJÓRI ÁRSINS: Hlynur Pálmason. Fagverðlaun verk: Volaða Land.

SJÓNVARPSMAÐUR ÁRSINS: Viktoría Hermannsdóttir

TÓNLIST ÁRSINS: Herdís Stefánsdóttir og Kjartan Dagur Holm.

UPPTÖKU- EÐA ÚTSENDINGASTJÓRI ÁRSINS: Salóme Þorkelsdóttir. Fagverðlaun verk:
Söngvakeppnin 2022

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila