Verðmætabjörgun haldið áfram í Grindavík í dag

Verðmætabjörgun verður haldið áfram í Grindavík í dag líkt og undanfarna daga. Sem fyrr er fyrirkomulagið í höndum Lögreglustjórans á Suðurnesjum og í dag hefur hann gefið út áætlun um fyrirkomulagið.

Fyrirkomulagið verður eftirfarandi:

Búið er að hafa samband við þá íbúa Grindavíkur sem eiga þess kost að fara inn í bæinn í dag. Vakin er athygli á því að þeir einir fá að fara inn í bæinn sem hafa fengið boð um það. Skráning er í gegnum island.is

Aðkomuleið fyrir íbúa til verðmætabjörgunar í dag er um Suðurstrandarveg. Mót er við gatnamót Krýsuvíkurvegar. Heimildin tekur til 120 fasteigna í Grindavík. Aðgerðin hefst kl. 9. Eftir kl. 15 í dag verður fyrirtækjum hleypt inn á svæðið. Ítrekað er að þeir einir fara inn í Grindavík sem hafa fengið boð um það. Samhliða þessu eru viðbragðsaðilar í sérverkefnum.

Vakin er athygli á því að það er ekki sjálfsögð krafa að fara inn á hættusvæði sem hefur verið rýmt af öryggisástæðum. Fyrst og fremst þarf að huga að öryggi viðbragðsaðila sem flestir eru sjálfboðaliðar. Þeirra öryggi þarf ávallt að tryggja. Áfram eru miklar líkur taldar á eldgosi.

Íbúar eru upplýstir um framkvæmdina og hvenær þeir eiga að mæta við gatnamót Grindavíkurvegar og Krýsuvíkurvegar. Íbúar verða fluttir með viðbragðsaðilum frá söfnunarstað utan Grindavíkur og frá heimilum í Grindavík til baka.

Í dag eru viðbragðsaðilar að vinna inn á mesta hættusvæði Grindavíkur. Fjölmiðlafólk hafi samband við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra varðandi aðgang að lokuðum svæðum. Undanþágur frá drónabanni eru veittar en afgreiðsla þeirra er í höndum ríkislögreglustjóra.

Íbúum Grindavíkurbæjar er bent á góða upplýsingagjöf á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.grindavik.is og heimasíðu almannavarna www.almannavarnir.is

Til athugunar fyrir íbúa:

  1. Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara
  2. Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað
  3. Munið eftir húslykli
  4. Poka eða annað undir muni
  5. Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilum
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila