Vetrarhátíð lýsir upp borgina með yfir 150 viðburðum

Vetrarhátíð 2026 verður sett fimmtudaginn 5. febrúar klukkan 19 í garði Listasafns Einars Jónssonar við Hallgrímstorg og markar upphaf umfangsmikillar menningarhátíðar þar sem ljós og myrkur mynda rauðan þráð í allri dagskrá. Ríflega 150 viðburðir verða í boði víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og er aðgangur ókeypis að öllum viðburðum.

Við setningarathöfnina mun borgarstjóri Reykjavíkur opna hátíðina og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra flytja ávarp í tilefni sameiningar Listasafns Einars Jónssonar og Listasafns Íslands. Opnunarverk hátíðarinnar verður gagnvirka ljós-, hljóð- og myndverkið Synergy 2.0 eftir listhópinn Mercury Maze Studio sem verður varpað á Hnitbjörg, byggingu safnsins. Verkið býður gestum að upplifa samspil ljóss, forms og hljóðs þar sem arkitektúr hússins umbreytist í lifandi myndheim. Sýningin verður opin daglega á hátíðinni frá klukkan 18.30 til 22.30.

Gagnvirkt orgel og tónlist í helgimyndum borgarinnar

Strax að lokinni setningu hefjast tónleikar í Hallgrímskirkju þar sem flutt verða fjögur gagnvirk tónverk fyrir tölvustýrt orgel undir yfirskriftinni HyperOrgel. Tónleikarnir opna á nýja vídd í hljóðflutningi þar sem tæknin ræður ferðinni í túlkun og hljóðáferð. Á meðan hátíðin stendur yfir verður jafnframt boðið upp á kvöld- og hádegistónleika, fyrirlestra og fleiri tónverk innan kirkjunnar.

Í Ráðhúsi Reykjavíkur verða tónleikar öll kvöld hátíðarinnar þar sem bæði innlent og erlent tónlistarfólk kemur fram. Meðal þeirra sem stíga á svið eru breski listamaðurinn Coby Say á opnunarkvöldi, tvíeykið Cryptic Freedom Duo ásamt tónlistarmanninum „Sleepy“ Doug Shaw á föstudegi og Benni Hemm Hemm ásamt kór á laugardegi í sjónrænt ríkri sviðsuppsetningu.

Ljósaslóð tengir saman helstu kennileiti

Ljósaslóð Vetrarhátíðar verður eitt af stærstu aðdráttaraflum hátíðarinnar en hún samanstendur af 18 ljóslistaverkum sem mynda gönguleið frá Hallgrímskirkju að Ráðhúsi Reykjavíkur. Tvö verk voru valin í sérstakri samkeppni borgarinnar og Veitna, Ljóslifandi á Austurvelli og Í nýju ljósi við Ráðhúsið, þar sem gestum er boðið að stíga inn í upplifunarrými ljóss og íhugunar.

Hallgrímskirkja verður jafnframt lýst upp með verkinu Ljósmót þar sem litir og mynstur umbreyta kirkjunni í lifandi ljósform. Þá opnar málverkasýning í Gamla Landsbankahúsinu í Austurstræti á sama tíma og setningarathöfn hátíðarinnar fer fram og stendur sýningin yfir næstu daga.

Safnanótt, Sundlauganótt og fjölskylduvæn dagskrá

Föstudagskvöldið 6. febrúar fer Safnanótt fram þar sem um 40 söfn á höfuðborgarsvæðinu opna dyr sínar án aðgangseyris. Fjölbreyttir viðburðir verða í boði, þar á meðal leiðsagnir, tónleikar, listasmiðjur, ratleikir, ljóðaslamm og sérviðburðir fyrir börn og fullorðna. Sérstök áhersla verður lögð á óhefðbundna nálgun og nýja sýn á safnastarf.

Laugardaginn 7. febrúar tekur Sundlauganótt við þar sem frítt verður í valdar sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu. Gestir geta þá notið kvöldstundar í myrkri með ljósasýningum, sirkuslistum, sundballett, tónlist og róandi hljóðum í óvenjulegu umhverfi.

Samhliða þessum stærri viðburðum verður boðið upp á göngur í Grasagarðinum, ratleiki í Sjóminjasafninu, handverkssýningar, erindi, tónlistarviðburði og fjölda fjölskylduvænna uppákoma víðs vegar um borgina. Í öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins verður sérstök dagskrá í tilefni hátíðarinnar.

Vetrarhátíð stendur yfir frá 5. til 7. febrúar og eru allir viðburðir ókeypis. Markmið hátíðarinnar er að lífga upp á borgarlífið í skammdeginu og skapa sameiginlega upplifun þar sem ljós, listir og samvera mynda heildstæða menningarveislu fyrir íbúa og gesti.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila