Eins og oft áður brugðum við á leik með Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur miðli og var hún gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu í dag þar sem hún greindi frá því sem hún sér fyrir sér gerast hér heima og heiman á næstu misserum og ætlum við hér að stikla á því sem fram kom í spá Guðrúnar.
Ísland
Verkalýðsmálin
Verkalýðshreyfingin mun sýna tennurnar með Sólveigu Önnu, Vilhjálmi Birgis og Ragnari Þór í fararbroddi auk þess sem nýtt verkalýðsafl mun líta dagsins ljós. Verkföll skella á fljótlega og verða þau afar löng og ekki líkur á að samningar náist fyrr en á næsta ári og gefa verkalýðsfélögin ekkert eftir og halda fram sínum skýru kröfum um bætt kjör handa hinum vinnandi manni.
Stjórnmálin – Ríkisstjórnin springur
Guðlaugur Þór mun bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins gegn Bjarna en það munu tvær konur einnig gera, önnur dökkhærð en hin ljóshærð, en sú ljóshærða mun vera Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og mun verða næsti formaður Sjálfstæðisflokksins og í kjölfar þess verða forsætisráðherra. Bjarni mun hins vegar ekki taka þátt í kjörinu því hann mun segja af sér áður en það fer fram en ástæðan fyrir afsögn hans mun vera til komin vegna skýrslunnar vegna sölunnar á Íslandsbanka þar sem í ljós mun koma að að verið var að færa vandamönnum eignir á silfurfati.
Þá munu vandræðin vegna Íbúðalánasjóðs einnig vera hluti af þeirri ástæðu að Bjarni fer frá. Hann mun taka að sér sendiherrastöðu í Washington í kjölfarið. Karlmaður mun taka við fjármálaráðuneytinu af Bjarna. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mun áfram vera í varaformannssæti flokksins og lágvaxinn maður í yngri kantinum mun taka við stöðu ritara flokksins. Guðlaugur Þór mun að öllum líkindum fara frá þar sem unga fólkið sem verður mjög áberandi í forustuhlutverkum í flokknum hafa ekki mikinn áhuga á að starfa með eldri stjórnmálamönnum.
Þegar skýrslan um söluna á Íslandsbanka verður bókstaflega allt vitlaust sem endar svo með því að ríkisstjórnin springur, þar spilar einnig inn sala íbúða Íbúðalánasjóðs og gerir almenningur miklar kröfur um að kafað verði djúpt í þessi mál og hverjum steini velt við og endar Íslandsbankaskýrslan á borði lögregluyfirvalda til rannsóknar. Framsókn mun missa fylgi vegna Íbúðalánasjóðsmálsins.
Þjóðstjórn verður mynduð eftir að ríkisstjórnin springur, sem fyrr segir fer Bjarni Benediktsson í sendiherrastöðu erlendis og Katrín Jakobsdóttir flyst einnig búferlum erlendis og tekur þar við starfi tengt loftslagsmálum.
Þegar Guðrún Kristín horfir á ráðherraembætti innan nýju þjóðstjórnarinnar sér hún að minnsta kosti þrjá af þeim einstaklingum sem fá ráðherraembætti, það eru Áslaug Arna sem verður forsætisráðherra, Sigmundur Davíð sem líklega verður fjármálaráðherra og þá verður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir heilbrigðisráðherra. Þá segir Guðrún að fólk muni gera auknar kröfur um að kjósa fólk en ekki flokka, en kosningar munu fara fram í maí á komandi ári.
Orkumálin verða áberandi á næstunni og segir Guðrún að hún sjái fyrir sér að orkunni verði dreift úr landi að einhverju leyti en þó muni verð á orku ekki hækka mikið þrátt fyrir það.
Dóms og lögreglumál – Vopnasala umfangsmeiri en sagt er frá
Koma mun í ljós að þeir sem sitja í gæsluvarðhaldi og sakaðir hafa verið um að leggja á ráðin um hryðjuverk séu í raun smákrimmar og málið sé í raun sett fram til þess að þyrla upp ryki og breiða yfir umfangsmikla vopnasölu sem lögreglunni er full kunnugt um og nær allt að 25 ár aftur í tímann og því ljóst að kafa þarf ofan í þau mál af vandvirkni. Ríkislögreglustjóri sem vissi af vopnasölu föður síns verður ekki stætt í embætti og mun að lokum láta af embættinu. Þá segir Guðrún að skoða verði vopnainnflutninginn í samhengi við þau morð þar sem skotvopn hafa verið notuð, til að mynda í Rauðagerðismálinu.
Þá munu erlend glæpagengi vera áberandi og ekki síst þær leiðir sem þær notfæra sér til þess að komast inn í landið en það gera þær með því að þykjast vera að koma frá Úkraínu en einnig öðrum stöðum eins og Venesúela. Glæpir munu fara vaxndi að mati Guðrúnar og fleiri morð verða framin hér á landi.
Þjóðkirkjan – Biskup hættir
Upplausnarástand ríkir í Þjóðkirkjunni og fer svo að lokum að biskup og mun karl taka við embættinu en að sögn Guðrúnar verður það mögulega Bjarni Karlsson sem sest í stól biskups. Koma mun í ljós að ásakanir í garð karla innan kirkjunnar um kynferðilegt áreiti og fleira eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum og sé hluti af persónulegum árásum í garð karlanna.
Sprautuherferðin
Guðrún segir að nú sé Covid formlega lokið og sé orðinn eins og hver önnur flensa, hætt verði því að gefa fólki sprautur við Covid.
Fátækt
Þörfin fyrir mataraðstoð mun færast í aukanna á næstunni og ljóst að hækkandi matarverð mun koma illa við marga, ekki síst eldra fólk og öryrkja, mataraðstoðin verður aukin í samræmi við þörfina segir Guðrún.
Veðrið
Veðrið í vetur verður fremur snjólétt og almennt nokkuð gott veður fyrir sunnan. Veturinn verður erfiðari og snjóþyngri á Norðurhluta landsins.
Utanríkismál
Nú þegar Sunak hefur tekið við forsætisráðherrastólnum í Bretlandi verður fljótlega farið að huga að því að koma Bretlandi aftur í Evrópusambandið og mögulega verður kosið um málið innan tíðar og það fara inn í sambandið á ný að lokum. Sunak mun standa sig vel í embætti að mati Guðrúnar. Staðan í Evrópusambandinu er þó ekki góð og litast mjög af því ástandi sem nú er í Evrópu vegna stríðsins í Úkraínu.
Stríðinu Í Úkraínu lýkur fyrr en seinna en þó ekki fyrr en Vladimír Pútín og Joe Biden hafa farið frá völdum, en í komandi kosningum í Bandaríkjunum munu Repúblikanar fara með sigur af hólmi sem þýðir að líkurnar á því að Donald Trump muni síðar bjóða sig fram til forseta aukast og mun hann taka ákvörðun um að bjóða sig fram segir Guðrún. Þá verða einnig talsverðar breytingar í stjórnmálunum í Brasilíu eftir komandi kosningar.