„Góður árangur Íslands í efnahagsmálum eftir fjármálakreppuna 2008 hefur vakið eftirtekt víða erlendis. Staða landsins er ágæt að ýmsu leyti enda er skuldastaða ríkissjóðs góð í alþjóðlegum samanburði, erlend staða þjóðarbúsins er jákvæð og gjaldeyrisvaraforði þjóðarbúsins öflugur. Þannig hefur viðnámsþróttur hagkerfisins styrkst. Hins vegar stendur íslenskt efnahagslíf frammi fyrir viðamiklum áskorunum um þessar mundir eins og kólnun hagkerfisins, stöðunni í kjaraviðræðum, horfum í ferðaþjónustu og ástandi loðnustofnsins. Það er mikilvægt að takast á við þessar áskoranir af festu og ábyrgð til að tryggja áframhaldandi lífskjarasókn í landinu,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.