Vilhjálmur Árnason leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ

Vilhjálmur Árnason, þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins, verður oddviti flokksins í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum eftir niðurstöðu prófkjörs sem fram fór á laugardag. Þrír buðu sig fram til forystu á listanum.

Fjölmennasta prófkjör flokksins í sveitarfélaginu hingað til

Alls greiddu 1.861 atkvæði og var kjörsókn tæp 52 prósent. Samkvæmt upplýsingum flokksins er um að ræða fjölmennasta prófkjör sem haldið hefur verið í sögu Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu.

Vilhjálmur með langflest atvkæði

Vilhjálmur hlaut 1.037 atkvæði eða um 58 prósent fylgi. Ásgeir Elvar Garðarsson varð í öðru sæti með 510 atkvæði eða um 28 prósent og Unnar Stefán Sigurðsson fékk 277 atkvæði sem jafngildir um 15 prósentum. Ógildir seðlar reyndust 37.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila