
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Baldur Borgþórsson og Sigfús Aðalsteinsson, fulltrúa stjórnmálaflokksins Okkar borg – Þvert á flokka í Síðdegisútvarpinu um fjármál Reykjavíkurborgar og skipulag stjórnsýslunnar. Þar kom fram að þeir telji skort á aðgengi að upplýsingum, um útgjöld borgarinnar, torvelda eftirlit með rekstri og ákvarðanatöku. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Upplýsingar um kostnað taldar ófullnægjandi
Baldur og Sigfús segja mjög erfitt að fá heildaryfirsýn yfir útgjöld borgarinnar, meðal annars vegna þess hvernig verkefnum og kostnaði sé skipt milli stofnana og rekstrareininga. Í máli Baldurs kom fram að samkvæmt stefnu Okkar borgar – Þvert á flokka, verði lögð áhersla á að gera fjárhagsupplýsingar aðgengilegri svo borgarbúar geti betur áttað sig á ráðstöfun opinbers fjármagns.
Hagræðing í stjórnsýslu nauðsynleg
Þá ræddu þeir umfang starfsmannahalds hjá Reykjavíkurborg og bentu á að stór hluti starfa tengdist skrifstofu- og millistjórnunarhlutverkum. Sigfús sagði að í stefnu flokksins felist að ráðningar verði endurskoðaðar á stjórnsýslustigi með það að markmiði að draga úr kostnaði, án þess að skerða grunnþjónustu á borð við skóla og félagsþjónustu. Í umræðunni kom jafnframt fram að stefnt verði að því að fara yfir eldri ákvarðanir og útgjöld borgarinnar með það fyrir augum að skýra hvernig opinberu fé hafi verið ráðstafað og hvort tilefni sé til breytinga á verklagi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
