
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Baldur Borgþórsson og Sigfús Aðalsteinsson, fulltrúa stjórnmálaflokksins Okkar borg – þvert á flokka í Síðdegisútvarpinu um menntamál í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar. Þar kom fram að þeir telji þörf á breytingum á innihaldi kennslu og skipulagi móttöku nemenda með annað móðurmál en íslensku. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Umdeildri kynfræðslu í leik- og grunnskólum verði hætt
Í umræðunni kom fram að samkvæmt stefnu Okkar borgar verði gerðar breytingar á þeirri fræðslu sem nú fer fram í leik- og grunnskólum borgarinnar. Sigfús sagði að flokkurinn telji að ákveðin fræðsluefni, meðal annars kynfræðsla, sem hafi verið mjög umdeild, eigi ekki heima í skyldunámi innan skólakerfisins heldur verði foreldrum gefinn kostur á að sækja slíka þjónustu utan þess ef þeir kjósa.
Sérstakar móttökudeildir fyrir nemendur
Þá ræddu þeir einnig stöðu nemenda sem hafa ekki íslensku að móðurmáli og sögðu að mikilvægt sé að tryggja að þeir fái viðeigandi tungumálastuðning áður en þeir hefja nám í almennum bekkjum. Í máli Baldurs kom fram að samkvæmt stefnu flokksins verði komið á fót sérstökum móttökudeildum þar sem nemendur fái íslenskukennslu áður en þeir færist yfir í hefðbundið skólastarf. Mat þeirra er að slíkt fyrirkomulag gæti auðveldað aðlögun nemenda að skólastarfinu og stuðlað að betri námsárangri til lengri tíma.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
