
Það er mikilvægt að efla samtöðuna í samfélaginu og við göngum jafnfætis og tökumst á við það sem að höndum ber saman. Það þarf líka að valdefla konur og gefa þeim hugrekki til að vera í forustu án þess að þær eigi á hættu að vera plokkaðar. Þá segir Sigríður að hún myndi hiklaust nýta málsskotsrétt forseta Íslands ef á þyrfti að halda. Þetta var meðal þess sem Sigríður Hrund Pétursdóttir frambjóðandi til embættis forseta Íslands sagði í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur í dag.
Sigríður sem meðal annars hefur setið í formannsembætti Félags kvenna í atvinnulífinu segir að með því að efla samstöðuna í samfélaginu fáist meiru áorkað. Hún segir að hægt sé að líkja þessu við oddaflug fugla þar sem einn fuglinn flýgur og leiðir hina. Eini fuglinn geti áorkað einhverju en fari allir fuglarnir fremst geti það myndað ákveðna höggbylgju sem veur þungt þegar á reynir.
Þriðja vaktin heima leggst til viðbótar á konur
Sigríður lætur jafnréttismálin sig mjög varða og segir að í samfélaginu hafi ágætlega gengið að ná fram jafnrétti á milli karla og kvenna en það hafi ekki gengið eins vel þegar kemur að atvinnulífinu. Enn sé erfitt að koma konum að í æðstu stöðum sem og í stjórnir fyrirtækja og þar þurfi að bæta úr að hennar mati. Þá sé þriðja vaktin henni einnig mjög hugleikin og fjölmargar konur séu enn á þeim stað að eftir að hefðbundinni vinnu sleppir taki svo þriðja vaktin við sem sé allt sem tilheyrir heimilinu. Skutla börnum á æfingar, elda, þrífa, þvo þvotta, og fleira sem tilheyrir heimilisverkunum. Hún segir að á sínu heimili séu þau hjónin mjög dugleg að skipta með sér verkunum sem þarf að sinna á heimilinu. Nefnir hún sem dæmi að maðurinn hennar sé farinn til vinnu mjög snemma en áður en hann fari þá sé hann til dæmis búinn að útbúa nestið fyrir börnin.
Stjórnmálamenn þurfa að hafa fjölbreyttann bakgrunn
Hvað hlutverk forseta og afstöðu Sigríðar til málskotsréttar forseta Íslands segir Sigríður að hún myndi hiklaust senda mál í þjóðaratkvæðagreiðslu og þá sérstaklega mál sem varði sjálfræði og fullveldi þjóðarinnar. Ef mál sem ekki væri eining um og verið væri að þrýsta áfram með óeðlilegum hætti væri eðlilegt að forseti sé öryggisventill því hann sé í raun öryggisventill fólksins þegar allt kemur til alls og gæta þarf þess að ná alltaf sem bestri lýræðislegri niðurstöðu. Hún segir í þessu sambandi að mikilvægt sé að það sé bæði á þingi og í sveitastjórnum fólk sem hafi sem fjölbreyttann bakgrunn því það tryggi frekar að mál séu rædd í þaula og komist frekar að góðri niðurstöðu.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan
