Vinna að því að Ísland verði í fararbroddi í stafrænni stjórnsýslu

Aðgerðaáætlun um eflingu stafrænnar þjónustu var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Efling þjónustunnar er eitt af forgangsmálum stjórnvalda og því hafa verið unnar tillögur að aðgerðum sem leggja munu grunn að því að Íslandi verði á meðal þeirra fremstu í heiminum þegar kemur að stafrænni stjórnsýslu og opinberri þjónustu. Þá mun efling stafrænnar þjónustu skila aukinni hagræðingu í ríkisfjármálum.

Tillögurnar sem samþykktar voru á ríkisstjórnarfundi í morgun eru m.a. að auka sjálfsafgreiðslu á Ísland.is þannig að almenningur geti nálgast þjónustu hins opinbera á einum stað og að einstaklingar hafi beinan aðgang að persónulegum gögnum sem hið opinbera ræður yfir. Stjórnvöld stefna að því að ríkið muni taka að sér útgáfu á rafrænum skilríkjum og jafnframt verða gagnasöfn efld og opnuð almenningi og vísindasamfélagi. Öll umgjörð stjórnsýslunnar um veitingu stafrænnar þjónustu verður efld á næstu árum.

Við ríkistjórnaskiptin í desember 2017 voru öll málefni upplýsingasamfélagsins flutt til fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þar með var stefnumótun um upplýsingatækni fyrir hið opinbera komin á eina hendi. Í framhaldi af því var stofnaður verkefnahópur innan ráðuneytisins sem gengur undir heitinu „Verkefnastofa um Stafrænt Ísland“. Verkefni sem unnin eru af verkefnastofunni ganga þvert á stofnanir ríkisins og sveitarfélög og tengjast einnig samstarfsverkefnum á grunni Digital North yfirlýsingarinnar. Megináherslur verkefnastofunnar til ársloka 2020 eru þrjár:

Að auka og bæta stafræna opinbera þjónustu á Ísland.is.
Að byggja upp og styrkja grunninnviði upplýsingatækni.
Að auka samrekstur stofnana á sviði upplýsingatækni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila