Site icon Útvarp Saga

Vinsældir Trump aukast því meiri aðsúg sem demókratar gera að honum – hefur 54% trygga forystu sem forsetaefni repúblikana

Ýmsum fannst upplitið á fréttateymi Fox News ekkert sérstaklega fagnandi, þegar verið var að tilkynna um vaxandi vinsældir Donald Trump sem forsetaefni repúblikanaflokksins. Trump hefur jafnt og þétt bætt fylgið frá 45% í janúar til 54% 19. mars s.l. DeSantis sem George Soros glóbalistaklíkan vill fá í opinbert framboð gegn Trump, tapar fylgi frá 34% í janúar til 26% 19. mars.

Jafnvel fyrrum Trumphatara ofbýður nornaveiðar demókrata sem hafa þveröfug áhrif miðað við það sem demókratar ætlast til. Samkvæmt síðustu könnun leiðir Trump með 54% sem er 28% forskot yfir Ron DeSantis sem kemur sem númer tvö með 26%. Númer þrjú er Pence með 7%.

2. janúar:
• Trump — 45% (+11)
• DeSantis — 34%

25. febrúar:
• Trump — 48% (+18)
• DeSantis — 30%

14. mars:
• Trump — 52% (+24)
• DeSantis — 28%

19.mars:
• Trump — 54% (+28)
• DeSantis — 26%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla