Site icon Útvarp Saga

WHO hefur áform um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma næstu 10 ár!

Eftirfarandi færsla birtist á bloggi Kristínar Ingu Þormar.

Stærsta lygi heimssögunnar er þessi svokallaði Covid „heimsfaraldur“, það var í raun aldrei neinn alvöru heimsfaraldur í gangi.

Gögn hafa verið fölsuð í stórum stíl og hömlurnar sem voru settar á mannkynið áttu aldrei neinn rétt á sér, voru í raun gjörsamlega tilhæfulausar, rétt eins og þessi svokölluðu „bóluefni“ sem búið er að sprauta í stóran hluta mannkyns.

Að rústa 190 fullvalda ríkjum félagslega, pólitískt og efnahagslega getur ekki verið „lausn“ á baráttu gegn vírusnum. En það var hin þvingaða „lausn“ sem var innleidd í nokkrum áföngum alveg frá upphafi „heimsfaraldursins“ í janúar 2020. Þetta var eyðilegging á lífum fólks og borgaralegum samfélögum.

Fölsuð vísindi voru notuð til að styðja við þessa skelfilegu áætlun, og lygunum var haldið uppi með gríðarlegum einhliða áróðursherferðum í fjölmiðlum um heim allan.

Hræðsluáróðurinn var linnulaus nánast allan sólarhringinn og fólk stöðugt minnt á „ógnina“ í fjölmiðlunum.

Söguleg lokun (lockdown) þann 11. mars 2020 olli skelfilegum efnahagslegum og félagslegum glundroða um heim allan. Þetta var í raun efnahagslegt stríð, stríð gegn mannkyninu.

Þessi djöfullega áætlun hefur grafið undan fullveldi þjóðríkja, stuðlað að öldu gjaldþrota og gert fólk fátækt um heim allan og leitt til vaxandi skuldasöfnunar.

Sterkir innviðir alþjóðlegs kapítalisma, auðmagn, ásamt njósna- og herbúnaði eru drifkrafturinn.

Með því að nota háþróaða stafræna tækni og fjarskiptatækni, eru lokanirnar og skemmdarverkin á heimshagkerfinu fordæmalaus í heimssögunni.

Ítarleg heimild og meira efni

Blekkingarnar

Fólk hefur verið sent í þessi PCR próf í milljarðavís, þrátt fyrir að vitað sé að þau voru aldrei hönnuð til að greina hvort einhver sé veikur eða ekki.

„Vísindin“ hafa breyst nánast dag frá degi, og undir því yfirskyni hafa verið réttlættar meiri hömlur á okkur.

Nærtækt dæmi er þegar sóttvarnalæknir okkar vísar í einhver „ný vísindi“ eða „nýjar rannsóknir“ án þess að sýna fram á nokkur gögn, og segist gjarnan vera að fylgja tilmælum WHO, sem vill svo til að er að sækjast eftir því að ná fullkomnum yfirráðum yfir heilbrigðismálum heimsins núna síðar í maí!

Sjá umfjöllun mína um það hér í færslunni Fljótum við sofandi að feigðarósi?

Heiðarlegir vísindamenn og læknar hafa verið smánaðir, bannaðir og útskúfaðir fyrir að „dirfast“ að tala á móti þessari einu leyfðu umræðu um „bóluefnin“ og „faraldurinn“, á meðan menn eins og Dr. Fauci fá að eiga senuna alveg skuldlaust, rétt eins og Bill Gates sem er ekki læknir né hvað þá sérfræðingur í heimsfaröldrum.

Hér er eitt dæmi um Dr. Fauci og hér er annað.

Faraldurinn er notaður til að koma á alræði í heiminum!

Í þessu einstaka 30 mínútna vídeói er dreginn fram hluti af atburðarrásinni mánuðina og árin fyrir „heimsfaraldurinn“, þar á meðal klippur með sláandi ummælum ýmissa aðila. Horfið á það allt til enda.

Nokkrir punktar úr vídeóinu:

Það er ekki lengur hægt að kalla allt þetta samsæriskenningar, sannanirnar blasa við þeim sem nenna að leita sér upplýsinga og staðreynda – hjá öllum öðrum en þeim sem hafa viðhaft og stutt þennan skelfilega hræðslu- og bólusetningaráróður í rúm tvö ár núna.

Hér á landi mætti nefna þríeykið með Þórólf fremstan í fararbroddi, Kára Stefánsson, Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, og fleiri, með dyggum stuðningi flestra fjölmiðla. Þetta fólk eru beinir þátttakendur í þessari samræmdu alþjóðlegu aðför gegn þjóð sinni, og í raun heimsbyggðinni allri.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla