Bóluefnagagnrýnendur hafa náð svo miklum áhrifum í heiminum að þeim hefur tekist að „grafa undan trausti“ á hinu svokallaða covid bóluefni. „Falsupplýsingar“ eru ríkjandi, sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO, á þriðjudag.
Glóbalistasamtökin WHO – sem eru fjármögnuð af Bill Gates – halda áfram að starfa sem einhvers konar alþjóðlegt yfirvald fyrir öllum löndum heimsins. Á þriðjudaginn reyndi Tedros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri WHO, að fá fleiri til að taka Covid „bóluefni“ en margir fyrrum einarðir stuðningsmenn Covid-bólusetninga sjá eftir að hafa látið bólusetja sig og eru orðnir skelkaðir – svo hættuleg er sprautan talin vegna allra aukaverkana.
0,1% dánartíðni undir 70 ára er ekki „alþjóðlegt neyðarástand“
Þegar vorið 2020 var dánartíðni Covid-19 lág eða 0,1 prósent meðal fólks undir 70 ára. En Ghebreyesus fullyrðir þvert á móti, að ástandið sé háalvarlegt. Nú eru tæp þrjú ár síðan WHO lýsti yfir „alþjóðlegri lýðheilsukreppu“ sem er hæsta viðbúnaðarstig stofnunarinnar. Í þessari viku mun Covid 19 kreppunefnd WHO halda fund og ræða, hvort núverandi ástand teljist enn „alþjóðlegt neyðarástand.“ Ghebreyesus segir:
„Þó ég muni ekki grípa fram í fyrir ráðgjöf kreppunefndarinnar, þá hef ég samt miklar áhyggjur af ástandinu í mörgum löndum og auknum fjölda dauðsfalla. Of fáir, sérstaklega aldraðir og heilbrigðisstarfsmenn, eru nægilega bólusettir. Of margir liggja eftir með örvunarsprautur.“
Segir veiruna jafn dauðlega og fyrr
Jafnframt bendir hann á, að verulega hafi dregið úr eftirliti og erfðagreiningu, sem að hans sögn gerir það erfiðara að rekja þekkt veiruafbrigði og uppgötva ný. Og hann kennir þeim um, sem dreifa „röngum upplýsingum“ um bóluefnið.
„Það er straumur gervivísinda og falsupplýsinga í umferð, sem grafa undan trausti á öruggum og áhrifaríkum verkfærum fyrir Covid-19. Skilaboð mín eru skýr – ekki vanmeta þessa veiru, hún hefur komið okkur á óvart og mun halda áfram að koma okkur á óvart og hún mun halda áfram að drepa, nema við gerum meira til að koma heilsuverkfærum til fólks, sem þarf á þeim að halda og til að bregðast alhliða við falsupplýsingum.“
Óteljandi heimskreppur – ekki síst loftslagskreppan
En það er ekki bara Covid sem ógnar heiminum. Nei, hætturnar eru fleiri. Alheimshætturnar eru sannarlega óteljandi, að sögn forstjóra WHO, ekki síst „loftslagskreppan.“ Tedros Ghebreyesus útskýrir:
„Covid-19 er ekki eina ógnin sem mannkynið stendur frammi fyrir. Ég hef frá áramótum talað um óteljandi ógnir sem krefjast áður óþekktra viðbragða, allt frá kóleru til átaka vegna loftslagskreppunnar.“
Gagnrýnin á bóluefnið og WHO heldur samt áfram að streyma af fullum krafti á samfélagsmiðlum, eins og sjá má á eftirfarandi tísti: