
Guðmundur Karl Snæbjörnsson sérfræðingur í heimilislækningum segir að hann hafi sent formlega og ítarlega yfirlýsingu til Umboðsmanns Alþingis, Embættis landlæknis, heilbrigðisráðuneytisins og Ríkislögmanns vegna alvarlegra ábendinga sem hann setur fram um gjöf lyfsins Beyfortus til nýbura og ungbarna. Hann segir að veittir frestir hafi verið liðnir án þess að efnisleg afstaða hafi verið tekin af hálfu yfirvalda og að málið hafi því verið fært á næsta stig.
Segir skorta laga og reglugerðarheimild
Í yfirlýsingunni greinir Guðmundur Karl frá ábendingum um að skorti laga og reglugerðarheimild fyrir gjöf lyfsins Beyfortus, einnig nefnt nirsevimab, til nýbura og ungbarna. Jafnframt setur hann fram ábendingar um annmarka á stjórnsýslumeðferð, áhættumati og gagnsæi í tengslum við meðferð málsins.
Telur viðbrögð tengjast gagnrýni
Þá segir Guðmundur Karl að í yfirlýsingunni sé sérstaklega vísað til nýlegra ummæla sóttvarnalæknis í opinberri umræðu, sem að hans mati staðfesti að stjórnsýsluleg viðbrögð gagnvart honum hafi tengst gagnrýni hans á opinbera sóttvarnastefnu. Hann telur að slík orsakatengsl milli tjáningar og íþyngjandi stjórnvaldsviðbragða falli samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu undir sjálfstætt brot á 10 gr Mannréttindasáttmálans.
Málið varði réttindi barna og mörk valds ríkisins
Guðmundur Karl áréttar að málið snúist ekki um persónulegan ágreining heldur grundvallarspurningar um lögmæti stjórnsýslu og vernd réttinda barna, eftirlit með lyfjainngripum og mörk valds ríkisins gagnvart gagnrýni og opinberri umræðu.
Skortur á viðbrögðum lagður til grundvallar
Guðmundur Karl segir að þar sem engin efnisleg afstaða hafi enn verið tekin af hálfu yfirvalda þrátt fyrir ítrekuð og rökstudd erindi hafi málið nú formlega færst á næsta stig. Hann segir að skortur á viðbrögðum verði lagður til grundvallar við mat á óvirkni innanlandsúrræða.
Guðmundur Karl segir að hann telji rétt að upplýsa fjölmiðla um stöðu málsins og hvetur til sjálfstæðrar og gagnrýninnar umfjöllunar.
Yfirlýsinguna má lesa í heild hér að neðan.
