Guðlaugur Þór fundaði með forseta Alþjóðabankans

Jim Young Kim og Guðlaugur Þór

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók í gær þátt í árlegum samráðsfundi ráðherra kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Alþjóðabankanum með Jim Young Kim forseta bankans.

Ræddu þeir meðal annars mikilvægi fjárhagslegrar styrkingar Alþjóðabankans en ljóst þykir að þörfin fyrir aðstoð og fjármagn hafi nær aldrei verið meiri. Lagði utanríkisráðherra áherslu á mikilvægi þess að bankinn kanni allar leiðir til fjármagnsaukningar þar sem aukin skilvirkni og aðrar innri aðgerðir væru ekki síður mikilvæg en aukning hlutafjár. Hann lagði einnig áherslu á að með styrkingu bankans þyrfti jafnframt að efla starf hans á sviði kynjajafnréttis.
Aukin samhæfing þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar var einnig til umræðu og hlutverk bankans í því samhengi. Samstarf Alþjóðabankans og Sameinuðu þjóðanna hefur aukist umtalsvert á síðastliðnum misserum, enda kalli breytt landslag á breytta starfshætti og aukna samvinnu allra aðila sem starfa á þessum vettvangi. Í því samhengi lagði utanríkisráðherra áherslu á mikilvægi þess að Alþjóðabankinn nýtti skilgreinda styrkleika sína, s.s. sérfræðiþekkingu, rannsóknar- og greiningarvinnu og vogarafl hans til að koma mörgum aðilum að borðinu. Þá væri lykilatriði væri að vinna að uppbyggingu viðnámsþróttar og að koma í veg fyrir neyð.
Í lok fundar bauð Guðlaugur Þór forseta bankans og ráðherrum kjördæmisríkjanna til fundar á Íslandi að ári, en Norðurlöndin skiptast á að halda hinn árlega samráðsfund. Alþjóðabankinn er ein af fjórum áherslustofnunum í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila