Ráðist á vegfarendur með eggvopni í Finnlandi

Finnska lögreglan hefur handtekið mann sem stakk fjölda vegfarenda með eggvopin í miðbæ bæjarins Turku. Að sögn sjónarvotta var nokkur fjöldi vegfarenda stunginn í árásinni en lögreglan skaut manninn í fótinn og handtók hann í kjölfarið. Talið er hugsanlegt að árásarmennirnir hafi verið fleiri  þar sem sjónarvottar segjast hafa séð þrjá menn hlaupa frá vettvangi og er þeirra nú leitað. Almenningur hefur verið beðinn að halda sig frá miðsvæði bæjarins. Enn er ekki ljóst hvort að um hryðjuverk hafi verið að ræða en lögreglan vinnur að rannsókn málsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila