Þrír hryðjuverkamenn felldir við dómshús í Pakistan

pakistancourtLögreglan í Pakistan felldi þrjá hryðjuverkamenn í vesturhluta Pakistan í morgun eftir að mennirnir reyndu að ryðjast inn í bygginguna. Sjónarvottar segja að hryðjuverkamennirnir hafi skotið á allt sem fyrir varð en aðeins er vitað um einn mann sem féll fyrir hendi hryðjuverkamannanna. Talið er að hryðjuverkamennirnir hafi ætlað sér að fremja sjálfsvígsárás inni í dómshúsinu en þeir höfðu á sér sprengjubelti. Ekki er vitað hvaða samtökum mennirnir tilheyrðu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila