Site icon Útvarp Saga

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu kynntar

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja aðgerðir gegn þeirri verðbólgu sem að undanförnu hefur farið stigvaxandi. Í tilkynningu segir að afkoma ríkissjóðs batni áfram miðað við fyrri áætlanir samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans og er afkoma á frumjöfnuði nú 90 milljörðum betri en gert var ráð fyrir við samþykkt síðustu fjárlaga.

Þá segir að til viðbótar við skýra stefnu sem birtist í framlagðri fjármálaáætlun og bættri afkomu ráðist ríkisstjórnin nú í enn frekari aðgerðir til þess að vinna gegn verðbólgu og frekari hækkun vaxta. Þetta styður við aðgerðir Seðlabanka Íslands og spornar gegn þenslu, bætir afkomuna og tekur utan um hópa sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir áhrifum verðbólgu og vaxtahækkana.

Helstu aðgerðir eru:

Hófleg launahækkun

Lagt verður fram frumvarp á Alþingi um að launahækkanir þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins verði minni í ár en viðmið laga gera ráð fyrir. Þannig muni launin hækka um 2,5% í stað 6%.

Þannig ætlar ríkisstjórnin að tryggja að laun æðstu ráðamanna auki ekki verðbólguþrýsting.

Góð staða efnahagsmála og sterkari ríkissjóður

Gangi nýleg þjóðhagspá Seðlabankans eftir er útlit fyrir að frumjöfnuður ríkissjóðs, þ.e. afkoma að frátöldum vaxtagjöldum, verði jákvæður um nærri 44 ma.kr. í ár. Þetta er 20 ma.kr. betri afkoma en vænst var við framlagningu fjármálaáætlunar í mars og 90 ma.kr. betri afkoma en vænst var við samþykkt fjárlaga fyrir yfirstandandi ár í desember síðastliðnum. Einnig er útlit fyrir 10 ma.kr. betri afkomu árið 2024 en áður var áætlað.

Afkomubati ríkissjóðs eftir heimsfaraldur er einn sá hraðasti meðal þróaðra ríkja. Fá hagkerfi hafa vaxið hraðar út úr faraldrinum og er útlit fyrir að hagvöxtur í ár verði óvíða meiri en hér á landi. Þessum mikla efnahagsbata hefur fylgt stórbætt afkoma ríkissjóðs, enda er atvinnuástandið gott, störfum hefur fjölgað um 10.000 á einu ári, mikil umsvif eru í flestum atvinnugreinum og útlit fyrir eitt besta ár ferðaþjónustunnar frá upphafi.

Hraður hagvöxtur og afkomubati ríkissjóðs stuðla að lækkandi skuldahlutföllum á næstu árum, en þau eru góð í alþjóðlegum samanburði. Gangi hagspá Seðlabankans eftir er líklegt að skuldir sem hlutfall af vergri landsframleiðslu batni áfram og verði um prósentustigi lægri en miðað er við í framlagðri fjármálaáætlun. Verða skuldir ríkissjóðs samkvæmt skilgreiningu laga um opinber fjármál þá um 30,5% af VLF í árslok í stað 31,4% af VLF. Fjármálaáætlun fyrir árin 2021-2025 gerði hins vegar ráð fyrir að skuldir ríkissjóðs yrðu um 50% af VLF í árslok 2023.

Sparnaður í ríkisrekstri dregur úr verðbólguþrýstingi

Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára gerir ríkisstjórnin ráð fyrir aðhaldi á næsta ári upp á 8,8 milljarða króna með auknum sparnaði í rekstri stofnana ríkisins, sérstöku viðbótaraðhaldi á aðalskrifstofur ráðuneyta og frestun fjárfestinga. Fjárfestingum verður frestað fyrir a.m.k. 3,5 ma.kr.

Til viðbótar verður afkoman bætt um 9 milljarða í fjárlögum ársins 2024. Þar verður m.a. horft til þess að draga úr ferðakostnaði Stjórnarráðsins og stofnana ríkisins, fresta fjárfestingum og draga úr ríkisstuðningi þar sem þenslan er mest. Meðal verkefna sem verður frestað frekar er nýbygging stjórnarráðsins við Lækjargötu og samhæfingarmiðstöð viðbragðsaðila.

Þá er unnið er að útfærslu ríflega 18 milljarða króna tekjuráðstafana fyrir fjárlög næsta árs sem m.a. munu birtast í breyttu gjaldtökukerfi af ökutækjum og í aukinni gjaldtöku á ferðaþjónustu. Þá verður gjald á fiskeldisfyrirtæki hækkað á árinu 2025 auk þess sem gert er ráð fyrir að endurskoðun veiðigjalds muni skila viðbótartekjum upp á samtals 13 milljarða á tímabili áætlunarinnar. Enn fremur verður tekjuskattur lögaðila tímabundið hækkaður um 1% í eitt ár árið 2025 vegna tekna ársins 2024.

Varðstaða um grunnþjónustu

Afkomutryggingakerfin og velferðarþjónusta eru áfram undanþegin aðhaldi og engin aðhaldskrafa er gerð á almannatryggingar, atvinnuleysistryggingar, sjúkratryggingar og heilbrigðis- og öldrunarstofnanir. Þá er aðhaldsmarkmið í rekstri framhalds- og háskóla lægra en almennt aðhald, eða 0,5% og felld er niður aðhaldskrafa á fangelsismál og á löggæslu á árunum 2024 og 2025.

Umgjörð ríkisfjármálanna styrkt

Samhliða bættri afkomu og aðhaldi munu stjórnvöld útfæra frekari umbætur á umgjörð ríkisfjármálanna til að stuðla að stöðugleika til lengri tíma. Í því skyni verður m.a. gripið til eftirfarandi aðgerða:

Tvöfalt fleiri hagkvæmar leiguíbúðir byggðar

Framboð af húsnæði fyrir tekju- og eignaminni fjölskyldur og einstaklinga verður stóraukið á næstu misserum. Framlög til hlutdeildarlána verða aukin enn frekar og stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða innan almenna íbúðakerfisins verða tvöfölduð þannig að 1000 íbúðir verða byggðar árlega 2024 og 2025 með stuðningi ríkisins í stað 500. Auk þess verða tæplega 800 íbúðir byggðar á þessu ári sem er fjölgun um 250 íbúðir frá fyrri áformum.

Fjármögnun er tryggð með svigrúmi sem til staðar er í fjármálaáætluninni og hliðrun annarra verkefna, enda er stöðugleiki á húsnæðismarkaði forgangsmál ríkisstjórnarinnar. Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á hagkvæmum leiguíbúðum sem stuðlar að lægra leiguverði. Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og standa til boða fyrir fyrstu kaupendur undir tilteknum tekjumörkum.

Þá er unnið að lagabreytingum sem munu bæta réttarstöðu leigjenda á húsnæðismarkaði og mun starfshópur skila tillögum sínum þar að lútandi fyrir 1. júlí næstkomandi.

Jafnframt eru í skoðun breytingar á lagaumhverfi heimagistingar til að jafna samkeppnisstöðu og draga úr þrýstingi á húsnæðismarkað.

Mótvægisaðgerðir fyrir lífeyrisþega, barnafólk og leigjendur

Ríkisstjórnin mun áfram styðja þá hópa sem erfiðast eiga með að mæta áhrifum verðbólgunnar og vaxtahækkana. Til að verja kaupmátt elli- og örorkulífeyrisþega verða bætur almannatrygginga hækkaðar á miðju ári um 2,5%. Til að húsnæðisbætur skerðist ekki á móti er frítekjumark húsnæðisbóta jafnframt hækkað um 2,5% afturvirkt frá og með 1. janúar 2023. Hvorttveggja er til viðbótar við 7,4% hækkun í upphafi árs.

Þessar aðgerðir koma til viðbótar verulegum stuðningi undanfarin misseri, en þar má m.a. nefna:

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla