Site icon Útvarp Saga

Ætla að draga úr bákninu til þess að lækka vexti

Benedikt Jóhannesson fjármála og efnahagsráðherra.

Benedikt Jóhannesson fjármála og efnahagsráðherra.

Benedikt Jóhannesson fjármála og efnahagsmálaráðherra segir að það sé á dagskrá ríkisstjórnarinnar að draga úr bákninu í þeim tilgangi að lækka vexti hér á landi. Benedikt sem var gestur Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisútvarpinu í dag segir að þetta sé sú leið sem sé fær stjórnvöldum til þess að taka á vaxtamálunum með áhrifaríkum hætti“ við stefnum að því að lækka úgjöld ríkissins úr 41% af vergri landsframleiðslu niður í 39%, það er í fjármálastefnunni„,segir Benedikt.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla