Site icon Útvarp Saga

Ætla að kolefnisjafna starfsemi Stjórnarráðsins

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja 12 milljónir króna af stefnufé árið 2018 til gerðar loftslagsstefnu og aðgerðaáætlunar fyrir Stjórnarráðið. Hluti fjármagnsins verður notaður í vinnu sérfræðings eða ráðgjafa og hluti til beinna aðgerða til að draga úr og hefja kolefnisjöfnun á starfsemi Stjórnarráðsins.
Loftslagsstefna fyrir Stjórnarráðið verður eitt þeirra verkefna sem unnið verður að undir hatti aðgerðaáætlunar fyrir Ísland í loftslagsmálum samanber stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem gert er ráð fyrir að muni líta dagsins ljós á þessu ári.
Gert er ráð fyrir því að hvert ráðuneyti tilnefni tengilið sinn í þessa vinnu og setji saman tveggja til þriggja manna teymi sem starfi með sérfræðingi/ráðgjafa við undirbúning og framfylgd verkefnisins. Í tilkynningu segir að ríkisstjórnin telji mikilvægt að Stjórnarráðið fari fram með góðu fordæmi, dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda í eigin ranni og vinni að því að kolefnisjafna Stjórnarráðið sem fyrst.
Þá segir í tilkynningunni að stofnanir hins opinbera muni njóta góðs af þessu starfi og geti fengið ráðgjöf um hvernig þær geti markað sér stefnu og aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Fleiri fyrirmyndir er einnig að finna hjá þeim ríkisstofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum sem þegar hafa riðið á vaðið og markað sér loftslagsstefnu. Starfinu verður í umsjón umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla