Site icon Útvarp Saga

Álfheiður Ólafsdóttir sýnir verk sín í Gallerý Grásteini á vetrarhátíð

Álfheiður Ólafsdóttir myndlistakona heldur sýningu á olíumálverkum sínum í salnum á efri hæð í Gallerý Grásteini, Skólavörðustíg 4 föstudaginn 3. febrúar klukkan 17-22, og er sýningin hluti af vetrarhátíð 2023. Myndlistarmaðurinn er sjálfur á staðnum og spjallar við gesti um sýningu sína og ljúfar veitingar verða í boði. Sýning Álfheiðar gefur innsýn í dulúðarheim álfa sem einkennist af mýkt, fegurð og gleði enda var sköpunarferlið ævintýri líkast. Álfheiður lýsir því á skemmtilegan hátt hvernig hugmyndin að sýningunni kviknaði:

„Að fegurðin kemur innan frá er sannarlega rétt. Grunnurinn af þessari sýningu eru kynni mín af álfinum Fróða. Hann birtist mér á haustdögum glaðlegur, kvikk og skemmtilegur náungi. Ég var í heimsókn hjá Ragnhildi Jónsdóttur sem áður rak Álfagarðinn í Hellisgerði og hún sagði mér að Fróði hefði flutt með sér frá Hafnarfirði upp í Hvalfjörð. Samkvæmt henni er hann rithöfundur í álfheimum og hefur gefið út margar bækur. Hann er 900 ára og hefur alla tíð verið glaður og smáhrekkjóttur. Ég leit í kring um mig og sá ekki þann sem um var rætt. Þá nefndi Ragnhildur að hann vildi ólmur gefa mér bók sem hann gaf út í mannheimum. Ég varð eitt spurningarmerki í framan, hvernig getur átt sér stað að álfar gefi út bækur?“

Gefum Ragnhildi orðið:

„Ég steinsofnaði og mig dreymdi þessa bók, þegar ég vaknaði skrifaði ég hana strax niður svo að ég myndi muna allan textann.“ Hún fjallar um álfa og hvernig við getum séð þá. Á meðan hún var að lýsa þessu fór hún augnablik fram til að sækja bókina.

Með þessari sýningu vill Álfheiður benda á að það er ekki of seint að tengjast álfunum,

„þeir vilja gleðja okkur og hjálpa. Fróði færði mér þessa gjöf að sjá inn í álfheima og gleður það sannarlega hjarta mitt. Litirnir í álfheimum eru mjúkir jarðarlitir; það eru nýjar fallegar litasamsetningar fyrir mér. Takk allir álfar, þið gleðjið og gefið ekkert nema fegurð og fallegt hjarta.“

Álfheiður útskrifaðist árið 1990 frá MHÍ í grafískri hönnun og hefur málað olíumálverk meira og minna síðan. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum. Málvekin hafa notið vinsælda og farið víða um heim. Álfheiður rekur Gallerý Grástein ásamt 10 öðum myndlistarmönnum. Sýning hennar í salnum stendur til og með 28. febrúar og er eins og galleríið opin alla daga kl. 10-18. Öll velkomin.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla