Fyrirhugað er að uppgjör fram fari þann 21. febrúar 2018. Þá segir í tilkynningunni að tilboð Kaupskila til Arion banka sé háð því skilyrði að uppgjör hafi átt sér stað á milli Kaupskila og íslenska ríkisins varðandi nýtingu Kaupskila á kauprétti 13% hlutar íslenska ríkisins í Arion banka. Hafi skilyrðinu ekki verið fullnægt á uppgjörsdegi, geti Kaupskil frestað uppgjörsdeginum um allt að tíu daga. Komi til þess að uppgjörsdeginum sé frestað hækkar kaupverð hinna seldu hluta í samræmi við skilmála samnings Kaupskila og íslenska ríkisins. Kaupréttur Kaupskila byggir á samningi við íslenska ríkið frá 3. september 2009.
Arion banki greiðir 90,087 krónur á hlut sem er sama verð og Kaupskil greiðir íslenska ríkinu við nýtingu kaupréttarins. Heildarkaupverð er rúmlega 17,1 milljarður króna og kemur sú upphæð til frádráttar arðgreiðslu sem samþykkt var á hluthafafundinum 12. febrúar og getur að hámarki verið 25 milljarðar króna.