Site icon Útvarp Saga

Frumvarp um réttur til greiðslu atvinnuleysisbóta vegna minnkaðs starfshlutfalls samþykkt á Alþingi

Rétt í þessu samþykkti Alþingi frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitanda.

Meginatriði frumvarpsins eru eftirfarandi:

Jafnframt er kveðið á um að sjálfstætt starfandi einstaklingar geti nýtt sér þetta úrræði enda hafi þeir tilkynnt skattayfirvöldum um verulegan samdrátt sem leiðir til tímabundinnar stöðvunar á rekstri.

Taflan sýnir samspil launa og atvinnuleysisbóta hjá einstaklingi í 100% starfshlutfalli.

Samkvæmt kostnaðarmati er áætlað að þetta úrræði geti kostað atvinnuleysistryggingasjóð um 13 milljarða króna.

„Afgreiðsla Alþingis á frumvarpinu er stórt skref í að mæta þeim fordæmalausu aðstæðum sem nú eru uppi á íslenskum vinnumarkaði. Ég hvet atvinnurekendur að minnka frekar starfshlutfall starfsfólks tímabundið í stað þess að grípa til uppsagna. Ef farin verður þessi leið verður viðspyrnan miklu snarpari og kraftmeiri þegar birta tekur á ný.“, segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Breyting á lögum um Ábyrgðarsjóð launa

Þurfi launamaður að sækja greiðslur á grundvelli laga um Ábyrgðarsjóð launa skal miða við vinnulaun hans fyrir síðustu þrjá starfsmánuði í þjónustu vinnuveitanda áður en starfshlutfall var minnkað vegna samdráttar í starfsemi vinnuveitandans vegna sérstakra aðstæðna á vinnumarkaði. Breytingin skal gilda um kröfur launamanna sem minnka starfshlutfall sitt frá 15. mars til og með 31. maí nk. vegna samdráttar í starfsemi vinnuveitanda sem rekja má til sérstakra aðstæðna á vinnumarkaði. Launamaður sem verður í þeirri stöðu að starfshlutfall hans er skert innan við þremur mánuðum fyrir gjaldþrot vinnuveitanda hans mun því eiga rétt á kröfu í Ábyrgðarsjóð launa miðað við fullt starfshlutfall eigi þær ástæður við sem fjallað er um í breytingunum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla