
Bill Gates hefur viðurkennt að hafa átt í tveimur ástarsamböndum við rússneskar konur á meðan hann var giftur fyrrverandi eiginkonu sinni Melindu French Gates. Viðurkenningin kom fram á starfsmannafundi hjá Gates-stofnuninni á þriðjudag þar sem hann fór yfir samskipti sín við Epstein samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal.
Ferðaðist með Epstein
Á fundinum upplýsti Gates að hann hefði ferðast með einkaflugvél barnaníðingsins Epstein og átt samskipti við hann bæði innan Bandaríkjanna og erlendis. Hann sagði jafnframt að hann hefði ekki tekið þátt í neinni refsiverðri háttsemi í tengslum við Epstein. Fram kom að Gates hefði fyrst hitt Epstein árið 2011 sem var eftir að Epstein hafði hlotið dóm í Flórída fyrir að útvega barni vændi.
Samskipti þrátt fyrir áhyggjur
Gates hélt áfram samskiptum við Epstein eftir fyrsta fund þeirra þrátt fyrir að Melinda French Gates hefði lýst yfir áhyggjum af tengslunum.
Hjónabandi þeirra Gates og Melindu French Gates lauk árið 2021 eftir 27 ára sambúð þegar hún lagði fram skilnaðarbeiðni. Á starfsmannafundinum viðurkenndi Gates einnig að hafa átt í framhjáhaldi á meðan á hjónabandinu stóð.
