Site icon Útvarp Saga

Borgaryfirvöld ætluðu sér aldrei að hafa neitt samráð um lokun Laugavegar

Baldur Borgþórsson borgarfulltrúi Miðflokksins

Það var aldrei ætlun borgaryfirvalda að hafa neitt samráð við íbúa og rekstraraðila við Laugaveg um lokun Laugavegar. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Baldurs Borgþórssonar borgarfulltrúa Miðflokkins í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Ernu Ýrar Öldudóttur.

Baldur segir að á meintum samráðsfundi borgaryfirvalda vegna lokana Laugavegar varð hann vitni að því þegar borgarfulltrúi í meirihluti lét þau  orð falla að meirihlutanum væri alveg saman um skoðanir íbúa og rekstraraðila um málið því þau ætluðu sér einfaldlega að loka Laugaveginum.

Undanfarin ár hafa staðið yfir deilur vegna lokunar Laugavegar og hafa meðal annars farið fram safnanir undirskriftar rekstraraðila á svæðinu þar sem lokunum er harðlega mótmælt og þá hefur mikill fjöldi verslana lokað og flutt annað eða einfaldlega hætt rekstri vegna lokunarinnar.

Þá hafa kaupmenn látið þau ummæli meðal annars falla að borgaryfirvöld væru helst þekkt af óheiðarleika og svikum.

Hlusta má á viðtalið við Baldur í spilaranum hér að neðan.

https://utvarpsaga.is/wp-content/uploads/viðtal-baldur-borgþórsson-22.10.20.mp3
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla